Olían er bílum mikilvæg 28. nóvember 2007 16:37 Árni Jónsson, starfsmaður Smurþjónustu Heklu, segir að lengra líði milli smurningar hjá nýjum bílum í dag en áður var enda sé þá notuð olía sem endist lengur. fréttablaðið/völundur
Við smurningu á bifreiðum er heilmargt sem huga þarf að. Smyrja þarf vélina, gírkassann, fram- og afturdrif og millikassann. Árni Jónsson, starfsmaður í Smurþjónustu Heklu, útskýrir hlutverk olíunnar. Árni segir nýrri bíla í dag vera með lengra þjónustutímabil en áður var. „Áður voru eknir um 7.500 kílómetrar á milli smurninga en nýrri bílar þurfa ekki að koma nema á 15.000 eða 30.000 kílómetra fresti. Svo er fjöldi bíla með aksturstölvu sem lætur vita þegar komið er að smurningu en olían er náttúrulega dýrari þegar svo langt er á milli smurninga,“ segir Árni og bætir því við að mismunandi sé hvaða olíutegund sé sett á bílana og fer það eftir tegund bílsins. „Við erum eingöngu með umboðsbíla frá Heklu í þjónustu hjá okkur og erum þá með allar upplýsingar í tölvu um þessa bíla, olíumagn og annað. Þannig vitum við hvaða olía fer á hvern bíl, hvaða þykkt og hvaða tegund olíu og annað.“ Árni segir alla bíla brenna olíu, allt að einum lítra á hverja þúsund kílómetra. „Þá þarf að bæta einum lítra á bílinn og þannig viðhelst fituinnihaldið í olíunni. Hún brennur og fer út um útblásturskerfið á bílnum,“ segir Árni og bendir á að nákvæmlega eins bílar geti brennt mismunandi miklu af olíu eftir því hvernig þeir eru keyrðir og fleira. Hlutverk olíunnar er margþætt og má þar nefna að hún kemur í veg fyrir að málmfletir nuddist saman og að nýtileg orka tapist við núninginn. Þá gegnir hún einnig því hlutverki að kæla þá hreyfihluta sem kælivökvinn nær ekki til og flytur óhreinindi í olíusíuna og heldur þannig hreyflinum hreinum. sigridurh@frettabladid.isSmurolían gegnir margvíslegu hlutverki fyrir bílinn eins og að koma í veg fyrir að málmfletir nuddist saman og að nýtileg orka tapist við núning. fréttablaðið/völundur
Bílar Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent