Kínverska lögreglan og bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafa leyst upp tvo umfangsmikla kínverska glæpahringi sem ábyrgir eru fyrir fölsun og dreifingu á allt að tveimur milljörðum eintaka af tölvuhugbúnaði. Hringirnir störfuðu í Shanghai og Shenzhen í Kína en dreifðu framleiðslu sinni víða um heim.
25 viðriðnir voru handteknir. Þá var lagt hald á falsaðan hugbúnað sem metinn er á 30 milljarða íslenskra króna.
Rannsókn á starfseminni hefur staðið yfir í tvö ár. Með gögnum frá FBI, kínversku öryggisskrifstofunni PSB og tölvurisanum Microsoft tókst að lokum að rekja uppsprettu varningsins. Aðallega er um að ræða falsanir á tölvuhugbúnaði frá Microsoft og Symantec.
Að sögn FBI endaði stærsti hluti framleiðslu hringjanna tveggja hjá neytendum í Bandaríkjunum, en einnig í Kanada, Bretlandi, Ástralíu og Japan.
Sjóræningjastarfsemi, eins og svonalagaðir glæpir eru gjarnan kallaðir, er mjög umfangsmikil í Asíu. Talið er að 82 prósent þess hugbúnaðar sem er í umferð í Asíu sé falsaður.