Sigur Obama vekur ólympíuvonir í Chicago 5. nóvember 2008 19:32 NordicPhotos/GettyImages
Sigur Barack Obama í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í gær er vatn á millu þeirra sem fara fyrir Ólympíunefnd Chicagoborgar. Borgin er ein þeirra sem sækist eftir því að halda Ólympíuleikana árið 2016. "Augu heimsbyggðarinnar hafa verið á Barack Obama og þar af leiðandi á Chicago. Þau eiga líklega eftir að verða það áfram," sagði Patrick Ryan, sem fer fyrir Ólympíunefnd Chicago-borgar. Obama hefur lengst af ferli sínum sem stjórnmálamaður haldið til í Chicago, en borgin er ein af fjórum borgum sem eru að sækjast eftir að fá að halda Ólympíuleikana árið 2016. Hinar borgirnar eru Tókíó í Japan, Ríó í Brasilíu og Madríd á Spáni. Tilkynnt verður á næsta ári hvaða borg fær að halda leikana 2016, en þeir voru síðast haldnir í Bandaríkjunum árið 1996 þegar þeir fóru fram í Atlanta. Ólympíunefndin í Chicago ætlar að reyna allt sem í hennar valdi stendur til að fá Obama í lið með sér til að tala fyrir hönd borgarinnar í baráttunni um leikana. Menn eins og Tony Blair og Vladimir Putin hafa áður lagt inn gott orð fyrir Ólympíuleika í heimalöndum sínum. Blair var talinn gegna lykilhlutverki þegar London fékk leikana árið 2012 og þá þótti Putin vega mjög þungt þegar hann talaði fyrir vetrarleikunum sem haldnir verða í Sochi árið 2014.
Erlendar Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu, Suðurnesjaslagur og van Gerwen mætir til leiks Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Fjórir frá hjá Blikum á morgun Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Spáir því að Joshua vinni með hrikalegu rothöggi Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Sjá meira