Miami - LA Lakers í beinni í nótt 19. desember 2008 18:59 Kobe Bryant og Dwyane Wade eru tveir af allra bestu leikmönnum NBA deildarinnar NordicPhotos/GettyImages
Leikur Miami Heat og LA Lakers verður sýndur beint á Stöð 2 Sport í nótt klukkan eitt. Hér mætast líklega tveir bestu skotbakverðir heimsins, þeir Dwyane Wade og Kobe Bryant. Heimamenn í Miami hafa unnið 12 leiki og tapað 12 en liðið hefur reyndar tapað síðustu þremur leikjum sínum. Dwyane Wade hefur ekki náð sér á strik í þessum leikjum eftir að hafa farið á kostum vikurnar þar á undan. Wade er stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar með 28 stig að meðaltali í leik og ekki er langt síðan kappinn fór hamförum í leik í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá skoraði hann 43 stig í sigri Miami á Phoenix þann 29. nóvember. Lakers-liðið hefur verið á gríðarlegri siglingu og hefur unnið 21 leik en tapað aðeins þremur. Liðið mætir til Miami í nótt hafandi unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant er stigahæsti maður liðsins að venju en hann hefur reyndar "aðeins" skorað 25 stig að meðaltali í leik í vetur. Breiddin í Lakers-liðinu er enda mikil og enn meiri en á síðustu leiktíð þar sem liðið hefur nú endurheimt miðherjann Andrew Bynum úr meiðslum. Spánverjinn Pau Gasol hjá Lakers er reyndar nokkuð tæpur fyrir leikinn í kvöld eftir að hafa verið veikur undanfarna daga, en ekki er ólíklegt að hann verði með. Lamar Odom var líka búinn að vera veikur en hann mætti á síðustu æfingu og ætti því líka að vera klár í slaginn í kvöld gegn sínum gömlu félögum á suðurströnd.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira