Boston einum sigri frá titlinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júní 2008 09:57 Paul Pierce, leikmaður Boston. Nordic Photos / Getty Images
Boston gerði sér lítið fyrir í nótt og vann fjórða leikinn í úrslitarimmu liðsins gegn Los Angeles Lakers í nótt, 97-91. Boston er því komið með 3-1 forystu og þarf því aðeins einn sigur til að tryggja sér meistaratitilinn. Þetta var mikill baráttusigur hjá Boston í nótt. Lakers komst mest í 24 stiga forystu í leiknum og var með ótrúlegt 21 stigs forskot eftir fyrsta leikhluta þar sem staðan var 35-14. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem lið í úrslitunum nær að vinna leik eftir að hafa lent meira en fimmtán stigum undir eftir fyrsta leikhluta. Lakers virtist hafa gert út um leikinn er liðið náði 20 stiga forystu þegar þriðji leikhluti var hálfnaður en þá byrjaði Boston að láta til sín taka og náði að minnka muninn í tvö stig áður en leikhlutinn var úti. Eddie House náði síðan forystunni fyrir Boston í fyrsta sinn í leiknum þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum og gengu Boston-menn á lagið. Paul Pierce, sem er uppalinn í Los Angeles, skoraði 20 stig í leiknum og gaf sjö stoðsendingar. Ray Allen skoraði nítján stig og tók níu fráköst og þá var Kevin Garnett með sextán stig og ellefu fráköst. James Posey átti einnig góðan leik og skoraði átján stig. Lamar Odom var stigahæstur hjá Lakers með nítján stig og tíu fráköst. Pau Gasol og Kobe Bryant voru með sautján stig hvor en Gasol var með tíu fráköst og Bryant með tíu stoðsendingar. Derek Fisher var með þrettán stig.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira