KSÍ ætlar að fylla Laugardalsvöllinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júní 2008 13:30 Úr leik Íslands og Serbíu í fyrra. Mynd/Anton
Knattspyrnusamband Íslands ætlar sér að fylla Laugardalsvöllinn er Ísland tekur á móti Slóveníu í undankeppni EM 2009 annan laugardag. Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, sagði á blaðamannafundi í dag að boðið verði upp á fjölskylduhátíð fyrir leikinn en dagskrá hennar verður auglýst betur síðar. Miðasalan á leikinn hefst í dag á ksí.is og miði.is en miðaverð er 1000 krónur fyrir sextán ára og eldri en frítt fyrir þá yngri. Geir Þorsteinsson sagði að það væru spennandi tímar framundan enda íslenska landsliðið á barmi þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppni stórmóts í knattspyrnu. „Við höfum dreymt lengi um að komast inn á stórmót. Við teljum okkur eiga fullt erindi þangað inn enda í fremstu röð með okkar lið. Við þurfum hins vegar stuðning áhorfenda og því höfum við sett okkur það markmið að fylla völlinn í fyrsta skipti á A-landsleik kvenna. Það er háleitt markmið en við teljum þetta mögulegt." Aðsóknarmet var sett á leik Íslands og Serbíu í fyrra er meira en sex þúsund áhorfendur komu á völlinn. „Katrín Jónsdóttir hafði það á orði í hálfleik í þeim leik að henni fannst við vera tveimur fleiri á vellinum," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari. „Það væri frábært að fá tilfinningu aftur." Ísland á tvo leiki framundan á heimavelli í undankeppni EM 2009. Fyrst gegn Slóveníu og svo Grikklandi. Sigurður Ragnar stefnir á sigur í báðum leikjum en með sigri á Slóvenum tryggir liðið sig í umspil um laust sæti á EM. Efsta sætið í hverjum riðli undankeppninnar tryggir beinan þátttökurétt á EM í Finnlandi á næsta ári og þarf Ísland að vinna báða leikina sem eru framundan til að eiga möguleika á því.
Íslenski boltinn Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Handbolti Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM Handbolti Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Sport Skotinn til bana í jarðarför móður sinnar Fótbolti Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Handbolti Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Enski boltinn Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ Fótbolti Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Handbolti Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Handbolti Chelsea - Arsenal | Harður slagur um sæti í úrslitum Enski boltinn Fleiri fréttir Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Sjá meira