Fótbolti

Bröndby lagði meistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Gíslason í leik með íslenska landsliðinu.
Stefán Gíslason í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm

Stefán Gíslason lék allan leikinn í liði Bröndby sem vann 2-0 sigur á Danmerkurumeisturum Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Þar með komst Bröndby aftur upp við hlið FCK á toppi deildarinnar en bæði lið eru með 52 stig eftir 23 leiki.

Liðin eru með fimm stiga forystu á OB í þriðja sæti deildarinnar en Álaborg er í fimmta sætinu með 34 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×