Handbolti

Róbert og félagar með annan fótinn í úrslitum EHF-bikarsins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson.

Róbert Gunnarsson og félagar í þýska liðinu Gummersbach unnu stórsigur, 39-25, á spænska liðinu Aragon. Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum EHF-bikarsins.

Róbert skoraði tvö mörk í leiknum en dómarar leiksins voru íslenskir. Það voru þeir Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson.

Síðari leikurinn fer fram á Spáni og þarf ansi mikið til að Róbert og félagar komist ekki í úrslit keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×