Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur tekið að sér stundakennslu við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Sigurjón hefur kennt áður, meðal annars við Háskólann í Reykjavík, en hann hefur nú tekið að sér að kenna inngangsnámskeið í fjármálaverkfræði.
Sigurjón er einmitt verkfræðingur sjálfur, nam vélaverkfræði á sínum tíma í Háskólanum.

