Stefano Domenicali, framvkæmdarstjóri Ferrari segir deilurnar um stigagjöfina í Formúlu 1 hina vandræðalegustu fyrir íþróttina. FIA, alþjóðabílasambandið gaf út nýja reglu í síðustu viku sem forráðamenn keppnisliða voru ekki sátt við. Reglan féll um sjálft sig á nokkrum dögum.
FIA vildi fella út stigagjöfina sem hefur verið notuð síðustu ár og auka vægi sigurs. Sá sem ynni flest gull yrði meistari.
"Þetta er vandræðalegt mál. Við vildum aukið stigavægi milli fyrsta og annars sætis, en FIA tilkynnti gullreglunar. Eftir stendur að ekkert hefur breyst", sagði Domenicali.
"Þá eru menn að rífast um loftdreifinn aftan á nokkrum bílum. Ég er sannfærður um að sum lið hafa ekki túlkað reglur um smíði bíla rétt. FIA þarf að leysa þetta mál áður en að keppni hefst. Það þurfa allir að taka ábyrgð og ég vona þetta mál verði leyst fyrir mótið í Ástralíu", sagði Domenicali.
Rifrildi um stigagjöfina vandræðalegt

Mest lesið




„Að lokum var það betra liðið sem vann“
Körfubolti



Tatum með slitna hásin
Körfubolti

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Íslenski boltinn


Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Enski boltinn