Serbeski kantmaðurinn Milan Krasic er á leiðinni til Juventus. "Ég er hamingujusamasti maður í heimi," sagði Krasic og skafaði ekkert af því.
Honum hefur verið líkt við Pavel Nedved sem var stjarna hjá Juventus.
Krasic kemur frá CSKA Moskvu en hann mun skrifa undir fimm ára samning við Juventus.
"Ég hef alltaf haft trú á Juventus, jafnvel þegar ég vissi ekki alveg hvað var að gerast," sagði Krasic sem hefur verið að leita sér að nýju félagi í allt sumar.
Hann kostar um fimmtán milljónir evra.
Krasic í skýjunum með að fara til Juventus
Hjalti Þór Hreinsson skrifar

Mest lesið


„Draumar rætast“
Fótbolti


Benedikt hættur með Tindastól
Körfubolti

Stúkan: „Bera virðingu fyrir leiknum og andstæðingnum“
Íslenski boltinn





Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City
Enski boltinn