Fótbolti

Er David Silva á förum frá Valencia?

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
David Silva er mögulega á förum frá Valencia.
David Silva er mögulega á förum frá Valencia.

Manchester City horfa nú til David Silva, leikmanns Valencia, en liðið hefur mikinn áhuga á leikmanninum. Fleiri lið hafa sýnt leikmanninum áhuga en Real Madrid hefur meðal annars sýnt áhuga.

Það gekk ekki sem skildi hjá City í vetur en félagið rétt missti af meistaradeildarsæti sem að gæti haft mikil áhrif á vilja leikmanna til að spila fyrir félagið.

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er með David Silva á listanum sínum en þar eru einnig nöfn eins og Steven Gerrard og Daniele De Rossi svo að það gæti farið svo að ekki verði pláss fyrir Silva þar.

Valencia er tilbúið að selja leikmanninn fyrir rétt verð en allar viðræður fara mögulega í biðstöðu á meðan að HM stendur yfir fari svo að ekkert gerist á næstu dögum.

Silva er efstur á óskalista City en hann inniheldur meðal annars Edin Dzeko hjá Wolfsburg, James Milner hjá Aston Villa og Mikel Arteta Everton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×