Þrátt fyrir almennar þrengingar á danska vinnumarkaðinum hafa starfsmenn danskra banka upplifað mikla launaveislu á síðasta ári. Laun þeirra hækkuðu um allt að 9% að meðatali á árinu meðan að aðrir almennir launþegar þurftu að láta sér nægja hækkanir upp á 2% til 3%.
Þetta kemur fram í könnun sem Ekstra Bladet hefur gert um launahækkanir í 12 stærstu bönkum Danmerkur á síðasta ári. Þar kemur fram að launin hækkuðu mest hjá Nordea og Nykredit Bank eða um 9% að meðaltali. Næst kemur Alm. Brand Bank með hækkanir upp á 8% og í þriðja sæti er Danske Bank þar sem laun starfsmanna hækkuðu um 7% að meðaltali.
Bent Greve prófessor við háskólann í Hróarskeldu segir að þessar launahækkanir séu langt umfram það sem aðrir launþegar hafi fengið á síðasta ári. Og með tilliti til fjármálakreppunnar og afleiðinga hennar líti þetta ekki „fallega" út.
Nels Petersen fjölmiðlafulltrúi Nykredit Bank segir að bankinn sé með marga sérfræðinga og menntamenn í vinnu og að það útskýri há laun hjá bankanum.