Nýja orkustefnu strax! Björk Guðmundsdóttir skrifar 7. október 2010 00:01 Hinn 17. september kom út skýrsla nefndarinnar um orku- og auðlindamál sem átti m.a. að fjalla um sölu HS Orku til Magma. Þetta eru mjög áhugaverðar 93 blaðsíður sem væri vel hægt að nota sem upphaf á stefnu þjóðarinnar í umhverfismálum og umgengni á auðlindunum, bæði til sjávar og lands. Þegar skýrslan kom út voru nefndarmenn spurðir hvort skúffan í Svíþjóð væri lögleg eða ekki. Þeir sögðu að það væri túlkunaratriði. Samstundis fór það upp á síður fjölmiðlanna að salan til Magma væri í lagi. Málið er ekki alveg svona einfalt. Stjórn Íslands hefur nú fjóra ráðherra í að fara í gegnum þessa skýrslu og mun líklegast koma með niðurstöður fljótlega. Nú á fimmtudag mun fara fram málþing í Háskóla Íslands þar sem ráðið verður í skýrsluna með sérfræðingum, meðal annars nefndarmönnum sjálfum. Ég skora á alla sem hafa áhuga að mæta til að kynna sér þessa mjög svo upplýsandi skýrslu. Mér finnst of mikil áhersla hafa verið lögð á það í umræðunni um Magmamálið hvort þessi fræga skúffan sé lögleg eða ekki. Það er aðeins smáatriði í stóru spurningunni: vilja Íslendingar einkavæða aðgang að orkuauðlindum sínum? Könnun var gerð þar sem rúm 80% Íslendinga sögðu að þeir vildu það ekki. Til að bregðast rétt við stöðunni þarf ráðamenn með framtíðarsýn og hugrekki, sem eru tilbúnir að breyta lögum og síðan framkvæma róttækar breytingar. Tæp 20.000 manns hafa skrifað undir á orkuaudlindir.is þar sem þeir andmæla sölunni á HS Orku til einkaaðila og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Vilja ráðamenn þjóðarinnar virkilega þrýsta sölunni á þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins í gegn í óþökk Íslendinga? Þetta mál snýst ekki bara um söluna til Magma heldur stefnu þjóðarinnar í orkumálum. Mig langar að minna þjóðina á að þeir sem vilja láta í sér heyra í þessum málum ættu að nota tækifærið og skrifa undir núna. Geysir Green Energy neitaði þessari stjórnskipuðu nefnd um aðgang að öllum upplýsingum. Síðan sendi Geysir Green umboðsmanni Alþingis fyrirspurn um hversu lögleg afskipti nefndarinnar af sölu HS Orku eru. Telur Geysir Green sig vera yfir allt hafið, meira að segja stjórnvöld landsins? Hljómar þetta eitthvað kunnuglega? Gæti þetta ekki þýtt að þeir hafi eitthvað að fela? Hver eru annars raunveruleg tengsl á milli Suðurorku, Geysir Green, Magma, REI og HS Orku? Þetta þarf að rannsaka á sama hátt og bankahrunið var rannsakað. Nú þegar hafa ofangreind fyrirtæki sýnt áhuga á Hrunamannaafrétt, Kerlingarfjöllum, Öræfum, Krísuvík, Reykjahlíð og Vogum við Mývatn. Magma myndi ekki aðeins fá einkarétt á nýtingu mikilvægra orkuauðlinda heldur jafnframt þau leyfi og réttindi sem HS Orka og Suðurorka hafa og væri því komið í lykilstöðu víða um land. Eftir bankahrunið ættum við að hafa lært að ekki sé gott að láta fáa viðskiptamenn ákveða örlög okkar og ráðstafa peningunum okkar þar til fjöldi manns hefur bæði misst vinnu, hús, bíl og sjálfsvirðinguna. Reiði þjóðarinnar fór ekki framhjá neinum síðasta föstudag og á mánudag. Á samt að fara með náttúruna okkar á sama hátt? Á að ræna náttúruauðlindir okkar á sama hátt og bankana og almenning? Í síðustu viku var í fréttum að Landsvirkjun hefði tekið enn eitt gígantíska erlenda lánið á okkar nafni á ekki of góðum kjörum, keypt meirihluta að aðgangi á Þeistareyki og lokið svo samþykki við Alcoa og Rio Tinto um að stækka álverið í Straumsvík. Öllu þessu er skellt í gegn án umræðu eða neinnar orkustefnu sem fólk er sammála um. Ef verður af stækkun álversins í Straumsvík og Landsvirkjun klárar verkefni sitt á Þeistareykjum verða langflest jarðvarmasvæði okkar nýtt. Þá er of seint að gera aðra hluti. Þegar hart er í ári og erfitt eins og núna ættum við einmitt að vera að sá fræjum langt fram í tímann. Ekki vera með skyndilausnir eða óþarfa áhættu. Af hverju stefnum við ekki að því t.d. að rækta allt okkar eigið grænmeti? Og síðan þegar þeim áfanga er náð bæta við ávöxtum. Eins og ég hef minnst á áður í öðrum greinum finnst mér miklu betra ef við fjárfestum í grænni kostum. Þetta eru atvinnuskapandi hlutir sem vinna með landinu, bæta umhverfið, gera okkur sjálfstæðari, gefa arðinn ekki frá sér og munu vaxa í tugi ára, ekki hrynja eftir fjögur ár. Ómar Ragnarsson varð nýlega sjötugur og þjóðin kepptist við að leggja í púkk saman til að greiða fyrir skuldir hans, þakka honum fyrir óeigingjörn störf í þágu náttúrunnar og stytta var reist honum til heiðurs. En öll hans barátta, bar hún árangur? Stöðvaði hann Kárahnjúkavirkjun? Mér sýnist vera hefð fyrir því að finnast náttúruverndarfólk vera soddan dúllur og krútt og innst inni í hjartanu á okkur vitum við öll að þau hafa rétt fyrir sér en í "raunveruleikanum" virkar það ekki, þá hverfur trúin, og best að skella bara upp stóriðju þrátt fyrir öll mótmælin, og verðlauna fólkið svo bara með styttu seinna. Hvað vorum við að verðlauna? Hugrekki hans til að segja satt? En ætlum við að fara eftir því? Eða bara hlusta á það í smástund, bera vinstri hendina upp að eyra og svo halda áfram eyðileggingunni með þeirri hægri? Hefur einhvern tíma verið gerður almennilegur útreikningur um alla hina kostina? Um það hvernig við viljum að framtíðin sé? Fáum við ekki að taka þátt í að skapa auðlindastefnu?Framtíð þjóðarinnar í húfi Ég skil að þegar þjóðin er að heyja allar þessar stóru orrustur er erfitt að gefa meðferð náttúruauðlinda athygli. Ekki pláss. En tíminn er að renna út. Ef við tökum ekki stefnu núna, sættum þjóðina með t.d. þjóðaratkvæðagreiðslu, ef við brúum ekki bilið milli þessara ólíku en annars líku fylkinga, þá gæti það orðið of seint. Gæti verið líka að verið sé að skella þessu í gegn einmitt núna í skjóli kaossins? Maður heyrir að fólki finnist að sérstaklega núna í kreppunni höfum við ekki efni á að hlífa náttúrunni. En ef við seljum aðgang að auðlindunum og afsölum okkur ábyrgð á náttúrunni erum við um leið að horfa framhjá þeirri leið sem langflestir ráðgjafar hafa ráðlagt okkur að fara: að halda auðlindunum okkar sjálf, að vernda náttúruauðlindir okkar og vera ábyrg í nýtingu þeirra. Erfiðleikarnir eru miklir núna og erfitt að horfa fram á við þegar kreppir æ meira að á hverjum degi. En ef við hlúum ekki að náttúruauðlindum okkar núna eigum við á hættu að sýna af okkur vítavert gáleysi gagnvart framtíð okkar og barnanna okkar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Björk Umhverfismál Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar