Rickie Fowler sýndi ótrúleg tilþrif á öðrum keppnisdegi á heimsmótinu í holukeppni í golfi í gær þar sem hann „rúllaði" upp Phil Mickelson í 2. umferð í 32-manna úrslitum. Hinn 22 ára gamli Fowler sýndi enga miskun og vann hinn þaulreynda Mickelson 6 / 5 – sem er stærsti ósigur Mickelson í holukeppni frá upphafi. Ungir kylfingar stálu senunni í gær á þessu sterka móti en Fowler var á 8 höggum undir pari þegar leiknum lauk á 13. holu.
Hinn 17 ára gamli Matteo Manassero frá Ítalíu sigraði Charl Schwartzel frá Suður-Afríku og hinn 23 ára gamli Jason Day vann Paul Casey 4 /2. Manassero er eitt mesta efni sem komið hefur fram á síðari árum. Hann er yngsti sigurvegarinn á Evrópumótaröðinni frá upphafi og einnig sá yngsti sem hefur sigrað á opna breska áhugamannamótinu.
Mótshaldara eru eflaust ekki sáttir við þá staðreynd að stærstu nöfn mótsins eru úr leik. Tiger Woods féll úr keppni í fyrstu umferð, Lee Westwood, sem er efstur á heimslistanum, er úr leik eftir að hafa tapað gegn Nick Watney frá Bandaríkjunum. Steve Stricker og Jim Furyk eru einnig úr leik en þeir féllu báðir úr keppni í fyrstu umferð.
Þjóðverjinn Martin Kaymer vann Justin Rose frá Englandi en Kaymer er í öðru sæti heimslistans og er líklegur til afreka. Hann þurfti að hafa verulega fyrir sigrinum gegn Rose og úrslitin réðust ekki fyrr en á 20. holu.
Af þeim 16 kylfingum sem eru eftir í keppninni er helmingur þeirra 30 ára eða yngri.
Norður-Írinn Rory McIlroy átti ekki góðan dag gegn Ben Crane frá Bandaríkjunum. Hinn 21 árs gamli McIlroy, sem er í 7. sæti heimslistans, sá aldrei til sólar gegn Crane og tapaði með gríðarlegum mun, 8/7. Leiknum var því lokið á 11. braut.
Graeme McDowell frá Norður –Írlandi komst áfram með því að vinna Ross Fisher frá Englandi 4/2. Með sigrinum er öruggt að McDowell hefur sætaskipti við Tiger Woods á heimslistanum og fer Woods niður í fjórða sæti.
Miguel Angel Jimenez frá Spáni er langelsti kylfingurinn sem er enn í baráttunni, en hann er 47 ára gamall. Hann hefur eflaust fengið sér vindling og rauðvín í gærkvöldi en Jimenez kann að njóta lífsins og er yfirleitt ekki að stressa sig mikið á hlutunum. Hann mætir Ben Crane í næstu umferð.
Þeir sem mætast í þriðju umferð eru:
Bobby Jones deildin:
Nick Watney – Ryan Moore
Matteo Manessero – Luke Donald
Sigurvegarnir úr þessum tveimur leikjum mætast í átta manna úrslitum.
Ben Hogan deildin:
Rickie Fowler – Matt Kuchar
Greame McDowell – YE Yang
Sigurvegarnir úr þessum tveimur leikjum mætast í átta manna úrslitum.
Sigurvegararnir úr Bobby Jones deildinni og Ben Hogan deildinni mætast í undanúrslitum:
Gary Player deildin:
Martin Kaymer – Hunter Mahan
Ben Crane – Miguel Angel Jimenez
Sigurvegarnir úr þessum tveimur leikjum mætast í átta manna úrslitum.
Sam Snead deildin:
Geoff Ogilvy – Bubba Watson
Jason Day – JB Holmes
Sigurvegarnir úr þessum tveimur leikjum mætast í átta manna úrslitum.
Sigurvegararnir úr Gary Player deildinni og Sam Snead deildinni mætast í undanúrslitum:
Ótrúlegir yfirburðir hjá Fowler gegn Mickelson
