„Þetta var virkilega flottur leikur þar sem tvö góð lið mættust,“ sagði Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigurinn í kvöld.
Stjarnan vann virkilega mikilvægan sigur gegn KR, 107-105, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn og jöfnuðu því einvígið 1-1.
„Við mættum bara grimmir og klárir í kvöld og kláruðum dæmið. Í kvöld vorum við bara tilbúnir, en ég held hreinlega að við vorum farnir að trúa því sjálfir að þessa svokallaða pása myndi hafa áhrif á okkur í síðasta leik“.
„Við erum ekkert í þessu einvígi til þess að fá silfurverðlaun, við ætlum okkur alla leið og sýndum það í kvöld að það er alveg möguleiki,“ sagði Fannar.
Fannar: Mættum allir klárir í kvöld
Stefán Árni Pálsson skrifar
Mest lesið






Enn hærra metboð frá Liverpool
Enski boltinn

Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool
Enski boltinn


Keypti aðstoð frá norn til að hjálpa Knicks
Körfubolti

Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika
Íslenski boltinn