Axel sigraði með yfirburðum í karlaflokki á fyrsta stigamótinu Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 29. maí 2011 19:59 Axel Bóasson. Mynd/golf.is
Axel Bóasson úr Keili sigraði með yfirburðum á fyrsta stigamóti ársins á Eimskipsmótaröð GSÍ í golfi. Axel lék hringina tvo á Garðavelli á Akranesi á 7 höggum undir pari samtals og var hann sjö höggum betri en Arnar Snær Hákonarson úr GR sem lék á pari samtals. Stefán Már Stefánsson úr GR, sem var efstur eftir fyrri keppnisdaginn á -5 endaði á 2 höggum yfir pari og endað hann í þriðja sæti. Axel endaði í 10. sæti á stigalistanum á Eimskipsmótaröðinni í fyrra og er þetta fyrsti sigur hans á stigamótaröðinni. Hann varð tvívegis í þriðja sæti á síðasta tímabili. Hann lék á 69 höggum í dag við erfiðar aðstæður á Garðavelli þar sem töluverður vindur gerði kylfingum erfitt fyrir. Axel lék á 68 höggum í gær þegar veðrið var mun betra og skorið því frábært. Hann fékk m.a. örn á 13. braut vallarins sem er par 5. Alls fékk hann fjóra fugla á hringnum. Hlynur Geir Hjartarson úr GOS hefur titil að verja á Eimskipsmótaröðinni en hann endaði í 7. sæti á fyrsta mótinu ásamt tveimur öðrum kylfingum. Lokastaðan hjá efstu mönnum: 1. Axel Bóasson, GK,- 7 2. Arnar Snær Hákonarson, GR, par 3. Stefán Már Stefánsson, GR, +2 4. Helgi Birkir Þórisson, GSE, +3 4. Örvar Samúelsson, GA +3 6. Haraldur Franklín Magnús, GR, +5 7. Hlynur Geir Hjartarson, GOS, +6 7. Sigmundur Einar Másson, GKG, +6 7. Sigurjón Arnarsson, GR, +6 10. Örn Ævar Hjartarson, GS, +7
Golf Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira