Ytri Rangá er heldur betur að taka við sér. Við sögðum frá því í gær að þriðjudagurinn hafi verið besti dagurinn í sumar hingað til með 48 laxa. Miðvikudagurinn var svipaður með 45 laxa og 30 af þeim á morgunvaktinni. En morgunvaktin í dag, fimmtudag, kom með enn eina sprengjuna, 50 laxar á land og tæpur helmingur í Ægisíðufossi seinnihluta vaktarinnar.
Staurinn, Rangárflúðir, Klöppin og Borgin hafa einnig verið að gefa vel síðustu daga. Það verður gaman að fylgjast með vaktinni í kvöld og hvernig bestidagur sumarsins hingað til endar.
Rangárnar virðast hér með komnar á fullt og ef miðað er við magn af fiski sem kemur í ánna þegar göngurnar loksins hefjast þá er veisla framundan við bakkana þar eystra næstu vikurnar.
Birt með góðfúslegu leyfi Lax-Á
