Veiði

Frábært í Hítará

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd: www.svfr.is
Um miðjan júlí var útlitið ekkert sérlega bjart á Hítarárbökkum. Upp úr 20. júlí komu hins vegar stórar göngur í ána sem breyttu stöðunni heldur betur.

Segja má að allt frá því að stórgöngur komu í ána síðla júlímánaðar hafi verið frábær veiði í Hítará á Mýrum. Voru þriggja daga hollin að fá allt að 81 lax á stangirnar sex á aðalsvæðinu. Síðustu tvær vikurnar hefur veiði einnig glæðst verulega á veiðisvæðinu Hítará II og hafa þar nú veiðst um 140 laxar á tvær til fjórar dagsstangir.  Úr neðri ánni voru hins vegar komnir 432 laxar á hádegi í dag.

Því er ljóst að skammt er í að Hítará detti í 600 laxa veiði, og enn er einn og hálfur mánuður eftir af veiðitímabilinu. Ljóst er því að veiðin mun að minnsta kosti verða sambærileg veiðinni i fyrra þegar að 803 laxar veiddust. Hins vegar eru menn á einu máli um að mun meira sé af laxi í neðanverðri ánni miðað við sama tíma undanfarin tvö sumur.

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR






×