Fótbolti

Rúrik og félagar úr leik - Rossi með tvö

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúrik er í byrjunarliði OB í dag.
Rúrik er í byrjunarliði OB í dag. Nordic Photos / AFP
Rúrik Gíslason og félagar í OB Odense eru úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. OB tapaði síðari viðureign sinni gegn Villareal á Spáni 3-0.

Rúrik var í byrjunarliði OB en var skipt af velli á 57. mínútu. Danirnir áttu undir miklu höggi að sækja gegn Gulu kafbátunum á El Madrigal-vellinum.

Ítalinn Giuseppe Rossi skoraði fyrstu tvö mörk heimaliðsins á 50. og 66. mínútu. Carlos Marchena kláraði leikinn með marki á 82. mínútu.

OB vann fyrri leikinn í Danmörku 1-0 en sá aldrei til sólar í leiknum í kvöld.Villareal er því komið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi. Sjá helstu atvik hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×