Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í morgun, en næstsíðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn.
Sebastian Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 og Red Bull liðið er búið að tryggja sér titil bílasmiða, en barátta er um annað sætið í stigakeppni ökumanna á milli fjögurra ökumanna. Button er efstur þeirra með 240 stig, Fernando Alonso á Ferrari er með 227, Mark Webber á Red Bull 221 og Lewis Hamilton á McLaren 202.
Besti tími Button var 1.40.263 á æfingunni í Abú Dabí og hann varð 0.126 úr sekúndu á undan Webber, en Hamilton var 0.140 á eftir Button. Vettel var með fjórða besta tíma, 0.492 úr sekúndu á etir Button og Alonso fimmti, 0.538 á eftir besta tíma Button.
Romain Grosjean, meistarinn í GP2 mótaröðinni ók með Renault á æfingunni, í stað Bruno Senna og náði tólfta best tíma.
Tímarnir af autosport.com
1. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m40.263s
2. Mark Webber Red Bull-Renault 1m40.389s + 0.126
3. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m40.403s + 0.140
4. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m40.755s + 0.492
5. Fernando Alonso Ferrari 1m40.801s + 0.538
6. Felipe Massa Ferrari 1m41.260s + 0.997
7. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m41.340s + 1.077
8. Nico Rosberg Mercedes 1m42.130s + 1.867
9. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m42.151s + 1.888
10. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m42.377s + 2.114
11. Jean-Eric Vergne Toro Rosso-Ferrari 1m42.633s + 2.370
12. Romain Grosjean Renault 1m42.685s + 2.422
13. Vitaly Petrov Renault 1m43.118s + 2.855
14. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m43.255s + 2.992
15. Michael Schumacher Mercedes 1m43.389s + 3.126
16. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m44.412s + 4.149
17. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m44.484s + 4.221
18. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m44.565s + 4.302
19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m44.898s + 4.635
20. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m46.385s + 6.122
21. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m46.532s + 6.269
22. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m48.024s + 7.761
23. Robert Wickens Virgin-Cosworth 1m48.551s + 8.288
24. Rubens Barrichello Williams-Cosworth
Button fljótastur á fyrstu æfingunni í Abú Dabí
