Ár fáránleikans Atli Fannar Bjarkason skrifar 31. desember 2011 08:00 Árið 2011 er á enda. Þvílíkt ár. Eitt það minnisstæðasta er hiklaust framtakssemi tveggja stúlkna úr ungliðahreyfingu Framsóknarflokksins, en þær héldu svokallað VIP-partí í höfuðstöðvum flokksins við Grensásveg. Fólk hreinlega elskaði að kjamsa á málinu og umfjöllun fjölmiðla setti ný viðmið, enda hafði Ríkissjónvarpið aldrei áður verið með beina útsendingu frá slíkum viðburði. Allir vildu komast í partíið. Sigmundur Davíð, formaður Framsóknar, stal senunni með eftirminnilegum hætti þegar fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, sóttist eftir miða fyrir son sinn: "Þú getur halt þig eigið partí," sagði Sigmundur og orðin fengu umsvifalaust vængi. Steingrímur lét ekki segja sér það tvisvar og stóð fyrir umdeildu Dirty Night-kvöldi á skemmtistaðnum Players í Kópavogi skömmu síðar. Einn maður var öðrum fremri á tónlistarsviðinu og þakkaði fyrir sig með eftirminnilegum tónleikum í Hörpu eftir að hafa selt tæplega 30.000 eintök af plötu sinni Amma. Já, trúbadorinn Svavar Knútur sló öll met og söng sig inn í hvert einasta hjarta landsins. En gleðin var skammvinn. Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýsti yfir þjóðarsorg þegar Svavar skildi við söngkonuna Sinéad O'Connor skömmu fyrir jól. Óbeislaðar tilfinningar þjóðarinnar á götum úti komust í kjölfarið í heimsfréttirnar. Tónlistarárið var að öðru leyti frábært. Hljómsveitin HAM, með borgarfulltrúann Gísla Martein Baldursson og grínistann Þorstein Guðmundsson í broddi fylkingar, sendi frá sér eina af plötum ársins og Árni Johnsen lék nýtt efni á Iceland Airwaves-hátíðinni við fádæma undirtektir. Gagnrýnendur tónlistartímarita á borð við Rolling Stone og Clash áttu vart orð til að lýsa frammistöðu Árna, sem gerði skömmu síðar samning við útgáfurisann Universal. Ekki má gleyma afreksfólkinu okkar á sviði íþrótta, en þar voru konur í aðalhlutverki. Landslið kvenna í handbolta gerði frækna ferð til Brasilíu og varð heimsmeistari eftir sigur á Frökkum í æsispennandi úrslitaleik. Norskir fjölmiðlar fjölluðu sérstaklega mikið um sigurinn, enda var liðinu stýrt af Norðmanninum Ole Gunnar Solskjær. Loks náði söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir stórkostlegum árangri á heimsmeistaramótinu í Cross Fit. Hún vann mótið og fékk nafnbótina hraustasta kona heims. En vandræði í einkalífinu vörpuðu skugga á árangurinn í lok árs þegar Anna sótti um skilnað við bandaríska auðkýfinginn Cal Worthington, stofnanda Microsoft. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Lyftum umræðunni á örlítið hærra plan Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun 752 dánir vegna geðheilsuvanda – enginn vegna fjölþáttaógnar Grímur Atlason Skoðun Transumræðan og ruglið um fjölda kynja Einar Steingrímsson Skoðun Leikskólar eru ekki munaður Íris Eva Gísladóttir Skoðun Eru starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar viljandi að afvegaleiða umræðu um samsköttun? Gunnar Ármannsson Skoðun 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Magga Stína! Helga Völundardóttir Skoðun Þetta er námið sem lifir áfram Bryngeir Valdimarsson Skoðun Lykillinn að hamingju og heilbrigði Skoðun Uppgjöf Reykjavíkurborgar í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Eru starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar viljandi að afvegaleiða umræðu um samsköttun? Gunnar Ármannsson Skoðun
Uppgjöf Reykjavíkurborgar í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Eru starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar viljandi að afvegaleiða umræðu um samsköttun? Gunnar Ármannsson Skoðun
Uppgjöf Reykjavíkurborgar í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun