Annar skellur Grindvíkinga í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2011 20:43 Ryan Pettinella.
Grindvíkingar töpuðu sínum öðrum leik í röð í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið tapaði með 23 stiga mun á móti ÍR-ingum í Seljaskóla, 92-69. ÍR-ingar unnu aðeins 2 af fyrstu 10 leikjum sínum en unnu þarna sinn fjórða sigur í síðustu sex leikjum. Grindvíkingar voru búnir að vinna sex leiki í röð þegar þeir töpuðu óvænt með 19 stiga mun á heimavelli á móti Haukum á dögunum og þeir steinlágu síðan aftur í kvöld. Nemanja Sovic skoraði 26 stig fyrir ÍR, James Bartolotta bætti við 22 stigum og Kelly Biedler var með 16 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar. Kevin Sims lék sinn fyrsta leik með Grindavíkurliðinu í kvöld en liðið hafði ekki verið með bandarískan bakvörð í fyrstu fimm leikjum ársins. Sims endaði leikinn með 17 stig en klikkaði á 9 af 13 skotum sínum og skoraði flest stig sín þegar úrslitin voru ráðin. ÍR tók frumkvæðið með því að skora sjö stig í röð í fyrsta leikhluta og komast í 20-11. ÍR-ingar voru 22-15 yfir eftir fyrsta leikhlutann og voru síðan komnir með 24 stiga forskot í hálfleik, 56-32. ÍR-ingar voru enn með 25 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 74-49, og þá var orðið löngu ljóst í hvað stefndi en lokin skildu 23 stig liðin af.
Dominos-deild karla Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ Sjá meira