Borgar sig að gera við 21. júlí 2011 11:00 @Concept_myndatextar:„Við borum fyrst í stjörnuna, sprautum sérstökum efnum í sárið sem eru hert í útfjólubláu ljósi þannig að skemmdin hverfur,“ segir Smári um rúðuviðgerðirnar í Betra pústi. @Concept_ljósmyndari:Mynd/Anton
asd „Ef stjarna kemur í framrúðuna eftir steinkast borgar sig fyrir bíleigandann að láta gera við rúðuna í stað þess að skipta um gler,“ Þetta segir Smári Óskar Hólmarsson, framkvæmdastjóri í Betra pústi við Skógarhlíð í Reykjavík. „Viðgerð á rúðu er bíleigandanum að kostnaðarlausu því tryggingafélögin borga hana en sé hins vegar skipt um rúðu þarf bíleigandinn að borga 15% af heildarupphæðinni í sjálfsábyrgð,“ segir Smári og bendir á að framrúður séu dýrar, enda margt í þeim í dag sem hleypi upp verðinu. „Ef skipta þarf um framrúðu í rútu þá getur sú rúða kostað hálfa milljón og þær dýrustu eru upp á eina og hálfa,“ segir hann. „Ein rúta sem við fengum til okkar fékk stein í rúðuna í fyrstu ferðinni sinni. Okkur tókst að gera við hana og sú viðgerð hefur haldið vel.“ Smári mælir með því að fólk hafi rúðuplástur við höndina en hann má fá hjá tryggingafélögum. „Ef steinn kemur í rúðuna er best að skella plástri á sárið til að ekki fari óhreinindi í það og láta svo gera við rúðuna sem fyrst,“ ráðleggur hann. „Um leið og farið er að trassa viðgerð er hætta á að sprungur teygi sig víðar og þá verður að skipta,“ bætir hann við. Smári segir starfsmenn Betra pústs fást við ísetningar á bílrúðum þegar með þarf og jafnan vanda til verka. „Frágangur á rúðum skiptir öllu máli. Rétt efni verða líka að vera notuð því annars getur farið að ryðga meðfram rúðunni eftir ár og það er tjón fyrir bíleigandann. Rúðurnar verða að vera pottþéttar. Þar dugar ekkert fúsk.“adf
Sérblöð Mest lesið Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Neytendur Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira