Gróska í Forsælu 9. ágúst 2011 12:23 Hlín Gunnarsdóttir segir námslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja –markviss leið, hafa opnað fyrir sér nýjar víddir og aukið skilning. Mynd/hag
Hlín Gunnarsdóttir sótti námskeiðslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, og sér ekki eftir því. „Ég er menntaður leikmynda- og búningahönnuður og starfaði við það um árabil, jafnframt leiðsögn við ferðamenn heima og erlendis. Á einhverjum tímapunkti fæddist draumurinn um að bjóða upp á gistingu í heimilislegu umhverfi gömlu húsanna við Grettisgötu, þar sem ég bý. Ég hafði enga þekkingu á viðskiptum og skráði mig því á námskeið fyrir konur í Stofnun og rekstur smærri fyrirtækja hjá Brautargengi. Forsæla Apartmenthouse tók svo á móti fyrstu gestunum árið 2003. Eftir sjö ára starfsemi fannst mér þörf á einhvers konar örvun og næringu fyrir reksturinn. Þá rakst ég á þessa spennandi námskeiðslínu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námið var vel uppbyggt og kennararnir mjög góðir, jafnvel reikningsskil og skattamál urðu skemmtileg," segir hún og hlær. Hlín segir að námið hafi virkilega opnað nýjar víddir og aukið skilning. „Markaðssetning og aukin þekking á heimasíðugerð kemur að góðum notum. Möguleikar Fésbókarinnar voru opinberun og margt fleira var í pakkanum, gert til þess að hjálpa manni af stað eða styrkja í rekstri eigin fyrirtækis."
Sérblöð Tengdar fréttir Tvær hagnýtar námskeiðslínur á sviði reksturs og þjónustu Endurmenntun Íslands býður upp á tvær spennandi og hagnýtar námskeiðslínur. Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþættir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukkustunda nám," segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. 9. ágúst 2011 12:23 Mest lesið Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira
Tvær hagnýtar námskeiðslínur á sviði reksturs og þjónustu Endurmenntun Íslands býður upp á tvær spennandi og hagnýtar námskeiðslínur. Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþættir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukkustunda nám," segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. 9. ágúst 2011 12:23