Þægindin í fyrirrúmi 31. ágúst 2011 11:00 Sædís Guðmundsdóttir er Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Pennans, sem hefur allt til alls og gott betur þegar kemur að daglegum þörfum fyrirtækja. Mynd/Anton
Starfsfólk Pennans þjónustar fyrirtæki, stór og smá, í daglegum rekstri sínum,“ segir Sædís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Pennans. „Þjónustan auðveldar fyrirtækjum tímafrekt umstang og sé þess óskað sækir þjónustufulltrúi fyrirtækið reglulega heim,“ segir Sædís um fyrirtækjasviðið, sem sér fyrir öllu sem prýða má góðan vinnustað með viðeigandi rekstrarvörum, húsgögnum, ritföngum og síðast en ekki síst ljúffengum kaffisopa. „Um áramótin varð til nýtt fyrirtækjasvið þegar undir sama hatt fóru verslun Pennans í Hallarmúla, húsgagnadeildin og fyrirtækjaþjónustan, en sú breyting ætti að auðvelda viðskiptavinum enn frekar að fá allt sem viðkemur skrifstofunni á einum stað,“ upplýsir Sædís. Þjónusta fyrirtækjasviðs nýtur mikilla vinsælda meðal stórra sem smærri fyrirtækja, en hana er unnt að sækja í gegnum sölumenn og viðskiptastjóra, vefsíðu, síma, verslun og sýningarsali í Hallarmúla og í Hafnarstræti á Akureyri. „Við hlustum á viðskiptavininn, greinum þarfir hans og óskir og komum til móts við þær,“ segir Sædís um þjónustuna, sem nær um allt land. Reglulega fara sölumenn Pennans um landið á vegum fyrirtækjasviðs. „Kostir fyrirtækjaþjónustu eru ótvíræðir og það sparar í senn dýrmætan tíma og fyrirhöfn þegar fulltrúi okkar kemur á staðinn til þjónustu reiðubúinn. Þá starfar hjá okkur innanhússarkitekt með víðtæka vöruþekkingu á húsgögnum og kemur í fyrirtæki til að teikna upp lausnir og veita þjónustu varðandi vöruval og fleira, þeim að kostnaðarlausu. Því er ómetanlegt að geta leitað til sérfræðinga á þessum sviðum sem öðrum,“ segir Sædís. Fyrirtækjasvið Pennans er í stöðugri þróun og sífellt bætist við ný þjónusta og ríkulegt vöruúrval. „Fyrir einstaklinga og heimili er rétt að taka fram að verslun Pennans í Hallarmúla er enn sama góða verslunin, opin öllum eins og alltaf hefur verið, og með frábært vöruúrval og þjónustu.“
Mest lesið Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð Viðskipti innlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira