Dekkin skipta öllu máli í umferðinni 25. október 2011 11:00 "Við leggjum áherslu á að bjóða betri dekk á lægra verði,” segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar.
Dekkjahöllin er yfir 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki með hjólbarða- og smurstöðvar í Skeifunni 5, Reykjavík og einnig á Akureyri og Egilsstöðum. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá því það var stofnað á Akureyri en allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á snögga og góða þjónustu og að bjóða upp á mikið úrval dekkja á góðu verði.Dekk á betra verði Í dag er Dekkjahöllin með dekkjaumboð frá mörgum úrvals framleiðendum, svo sem japanska framleiðandanum Yokohama og Marangoni á Ítalíu. Einnig er fyrirtækið í samstarfi við TBC, sem er einn stærsti söluaðili dekkja í Bandaríkjunum, um sölu á vetrardekkjum. Þau dekk eru meðal annars framleidd af Cooper og Sailun. Dekkjahöllin hefur með þeim hætti skapað grundvöll til að bjóða enn hagstæðara verð en áður þekkist. „Við leggjum áherslu á að bjóða betri dekk á lægra verði. Með magninnkaupum og staðgreiðslu, þá náum við bestu fáanlegu innkaupsverðunum og getum því selt dekkin á betra verði en annars," segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar og jafnframt dóttir stofnanda fyrirtækisins. „Eftir að kreppan skall á hefur almenningur lagt enn meiri áherslu á verð og höfum við notið mikillar velvildar fyrir vikið og viðskiptavinum hefur fjölgað svo um munar. Ég get því sagt að kreppan hefur ekki haft neitt nema góð áhrif á okkur. Við höfum til að mynda sömu kennitöluna frá upphafi og njótum því mikils trausts bæði hjá viðskiptavinum og birgjum."Val á vetrardekkjum mikilvægt Fólk á Íslandi keyrir við margvíslegar og oft erfiðar vetraraðstæður og því eru starfsmenn Dekkjahallarinnar markvisst þjálfaðir og hafa mikla reynslu til að veita faglega ráðgjöf við val á hjólbörðum. Með miklu úrvali er hægt að koma til móts við mismunandi þarfir viðskiptavina, segir Elín Dögg og vill einnig koma á framfæri að hægt sé hringja eða að senda inn fyrirspurn í gegnum vefinn dekkjahollin.is til að fá uppgefið verð á mismunandi stærðum og gerðum dekkja. Fyrirspurnum er í flestum tilvikum svarað samdægurs svo það ætti enginn að fara á sumardekkjunum út í vetrarfærðina.
Sérblöð Mest lesið Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Viðskipti erlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Viðskipti innlent „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Viðskipti innlent Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Viðskipti innlent Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent Tollar á ál og stál hækka Viðskipti erlent Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR Viðskipti innlent Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira