Maðurinn sem sörfaði á Airwaves 16. desember 2011 14:00 á brimbretti Rich Aucoin á brimbretti á tónleikum í Bandaríkjunum fyrr á árinu. nordipchotos/getty
Rich Aucoin frá Kanada er á leiðinni til Íslands í annað sinn og spilar á Nasa 30. desember. Hann er rísandi stjarna í tónlistarbransanum og hefur vakið athygli fyrir brimbrettatakta sína. Kanadíski popparinn Rich Aucoin stígur á svið á Nasa 30. desember ásamt Retro Stefson og Of Monsters And Men. Hann er rísandi stjarna í heimalandi sínu og hefur verið spáð góðu gengi á heimsvísu í þekktum erlendum tímaritum. Aucoin spilaði einmitt á Nasa á Airwaves-hátíðinni í haust við mjög góðar undirtektir. „Það var alveg ótrúlega gaman. Ég hitti mikið af frábæru fólki og fór í skemmtileg partí,“ segir Aucoin sem spilaði einnig á nokkrum smærri tónleikum á hátíðinni. Tónleikagestum á Nasa er vafalítið eftirminnilegt þegar hann fór með hugtakið „crowd surf“ alla leið og sveif um á brimbretti yfir áhorfendaskaranum. Myndir af uppátækinu birtust á síðu tónlistartímaritsins Rolling Stone. „Það var rosalega gaman. Ég hef gert þetta örugglega sex sinnum og hef þetta alltaf mismunandi í hvert skipi. Í fyrsta sinn prófaði ég þetta á útihátíð þar sem þúsundir voru að horfa á. Ég hef líka gert þetta á pínulitlum stöðum en á stöðum eins og Nasa er þetta mjög gaman. Þar er margt fólk og allir geta líka séð hvað er að gerast. Það er líka gaman að gera þetta undir þessari risastóru diskókúlu sem er þar,“ segir Aucoinm. Hann fer einmitt oft á brimbretti heima hjá sér í Nova Scotia, meira að segja um vetur þegar sjórinn er ískaldur. Einnig reynir hann að nota tækifærið og fara á brimbretti á tónleikaferðum. Eins og brimbretta-svif Aucoins á tónleikum ber vott um er hann ófeiminn við að tengjast tónleikagestum sterkum böndum. „Mér finnst mjög mikilvægt að öllum líði eins og þeir séu hluti af tónleikunum. Ég vil vera eins mikið í áhorfendaskaranum og mögulegt er, ekki bara hanga uppi á sviði og vera úr tengslum við áhorfendurna.“ Aucoin gaf út sína fyrstu breiðskífu, We"re All Dying To Live, í nóvember síðastliðnum og hefur hún fengið mjög góðar viðtökur, rétt eins og skemmtilegt myndbandið við lagið It. Þar syngur Aucoin grípandi og dansvænt indípopp, þar sem Arcade Fire er á meðal áhrifavalda. Upptökurnar á plötunni stóðu yfir í þrjú ár og aðferðafræði Aucoins var óvenjuleg. „Ég bjó til grunnútgáfu af plötunni upp á eigin spýtur og svo ferðaðist ég um landið og tók upp með um fimm hundruð manns víðs vegar um Kanada. Þetta var skemmtileg leið til að læra af og kynnast mismunandi tónlistarmönnum. Ég reyndi að fanga kanadísku tónlistarsenuna eins og ég gat. Þetta voru allt frá heimaböndum sem spila fyrir fimmtíu manns upp í Arcade Fire og önnur stór, kanadísk bönd,“ segir hann en bassaleikari Arcade Fire spilar í einu lagi á plötunni. Aucoin er mjög ánægður með að vera aftur á leið aftur til Íslands og tekur fram að styttra sé að fljúga hingað frá Nova Scotia en hálfa leiðina yfir Kanada. „Mig langar að spila eins oft á Íslandi og ég mögulega get,“ segir hann og ætlar að dvelja hér á landi á gamlárskvöld og vera hér til 5. janúar. Á næsta ári verður nóg að gera hjá Aucoin. Tónleikar hafa verið bókaðir í Los Angeles, suðurríkjum Bandaríkjanna, Kanada og Ástralíu, auk þess sem hann spilar á hátíðinni South By Southwest í Texas í mars. freyr@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Staðfesta sambandsslitin Lífið Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Rósa og Hersir orðin foreldrar Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Fleiri fréttir Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Sjá meira