Málið snýst um sex milljarða króna lán Glitnis til félagsins FS-38 ehf. sem var dótturfélag Fons upp á sex milljarða króna í júlí 2008 til að kaupa 30 prósenta hlut í Aurum Holdings af Fons, en lánveitingin til FS-38 ehf. er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um umboðssvik.
Í bréfi sem Jón Ásgeir Jóhannesson sendi sérstökum saksóknara í október sl. og fréttastofan hefur undir höndum vísar hann til þess að embættið hafi nú þegar undir höndum gögn sem sýni að skrifað var undir óbindandi samkomulag, svokallað „Head of Terms" við Damas, einn stærsta skartgripasala Mið-Austurlanda, um kaup Damas á hlutabréfunum í Aurum hinn 14. júní 2008, áður en FS38 ehf. fékk lán hjá Glitni til að kaupa bréfin, en rannsóknin snýr að meintu yfirverði sem greitt var þegar Glitnir lánaði 6 milljarða króna fyrir 30 prósenta hlut í Aurum Holdings. Viðræður við Damas hafi staðið yfir fram í fyrstu vikuna í október er þeim var slitið vegna erfiðleika á alþjóðlegum á fjármálamörkuðum.

Þá er einnig vitnað til fréttar breska dagblaðsins Times þar sem fram kemur að Aurum Holdings sé 200 milljóna punda virði. Allt tal um refsivert athæfi sé því með öllu fráleitt.
Þá kemur fram í bréfi Jóns Ásgeirs að í yfirheyrslu yfir honum frá sumrinu 2011 hafið komið fram sú afstaða sérstaks saksóknara að samkomulagið við Damas hafi verið „uppdiktað skjal" gert í tengslum við lánið til FS-38 í þeim tilgangi að hafa fé út úr Glitni. Jón Ásgeir segir að nú hafi verið lögð fram gögn og upplýsingar sem sýni að svo var ekki. Á þeim grundvelli sé gerð krafa um að málið verði fellt niður.
Þess má geta að eiginkona Jóns Ásgeirs er stærsti hluthafinn í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.