Mótið á að fara fram á bökkum Hudson ár sem rennur milli Manhattan og New Jersey, með skýjakljúfana í New York í bakgrunn, í júní á næsta ári.
"Mótið verður kannski í New York árið 2013," sagði Bernie við BBC Sport. "Það er spurning um hvenær það verður: árið 2013 eða 2014." Þetta er í fyrsta sinn sem óvissa skapast um þetta mót, sem verður annar nýr vettvangur Formúlu 1 í Bandaríkjunum.
Bandaríski kappaksturinn í Austin í Texas er á áætlun og verður næst síðasti kappakstur ársins, þann 18. nóvember. Mikil óvissa hefur verið um hvort brautin í Austin verði tilbúin í tæka tíð en hana er verið að byggja frá grunni. Ekki bætir lagalegur ágreiningur um kappaksturinn stöðuna.
Ný mót á dagskrá Formúlunnar

Mótshaldarar á Spa-Francorchamps-brautinni í Belgíu hafa til dæmis samþykkt að halda mótið annað hvert ár, á móti franska kappakstrinum sem færi þá að öllum líkindum fram á Paul Ricard-brautinni í Suður-Frakklandi. Þetta er sá háttur sem mótshaldarar í Þýskalandi hafa viðhaft í nokkur ár. Þýski kappakturinn fer því ýmist fram á Nürburgring eða Hockenheim.
"Við viljum ekki fleiri mót," hefur Ecclestone látið hafa eftir sér og það virðist vera almennt viðhorf keppnisliðanna líka. Tímabilinu, sem telur nú 20 mót og stendur frá mars og fram í lok nóvember, fylgir gríðarlegt álag á starfsmenn liðanna sem og aukinn ferða- og rekstrarkostnaður við hvert nýtt mót.
Formúla 1 hefur ekki keppt í Frakklandi síðan 2008, þá á Magny Cours í Mið-Frakklandi. Búist var við því fyrir nokkru að Frakkar myndu skrifa undir nýjan samning við Ecclestone og halda kappakstur á næsta ári á Paul Ricard, en af því varð ekki. Það er því enn óljóst hvort franski kappaksturinn verði á dagskrá næsta árs.
Í þessa þrautarvinnu sem fylgir skipulagningu Formúlu 1-móta flækist svo mikil pólitík. Þannig er nefninlega ástatt í frönskum stjórnmálum að ríkisstjórn Nicolas Sarkozy, forseta landsins, hefur lofað stuðningi sínum við franskt mót á Paul Ricard. Kosningar eru á næsta leiti í Frakklandi og óvíst er hvort ríkisstjórn Sarkozy heldur velli, svo lélegt fylgi hlýtur stjórnin í skoðanakönnunum.