NBA: Indiana jafnaði á móti Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2012 09:00 Dwyane Wade. Mynd/AP
Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti Miami Heat en þetta var fyrsti heimaleikurinn sem Miami tapar í úrslitakeppninni NBA-deildarinnar í körfubolta í ár. Indiana vann leikinn 78-75 og næstu tveir leikir fara fram á heimavelli liðsins í Indianapolis. Miami lék án Chris Bosh og það munar greinilega um hann í baráttunni undir körfunum en Indiana lagði grunninn að sigri sínum með því að vinna þriðja leikhlutann 28-14 eftir að Miami var 38-33 yfir í hálfleik. David West skoraði 16 stig og tók 10 fráköst hjá Indiana og George Hill var með fimmtán stig. LeBron James skoraði 28 stig fyrir Miami og Dwyane Wade var með 24 stig. LeBron James klikkaði á tveimur vítum þegar 54 sekúndur voru eftir af leiknum og Miami var einu stigi undir. Dwyane Wade átti líka möguleika á því að jafna leikinn þegar 16 sekúndur voru eftir en klikkaði af stuttu færi. „Þetta er ekkert til að halda upp á því við höfum bara unnið einn leik í einvíginu. Við vorum grimmari í vörninni og héldum líka yfirvegun í upphafi leiksins sem hjálpaði okkur út leikinn," sagði David West eftir leikinn.
NBA Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira