Dagskráin hefst klukkan 17 og stendur til 19.30. Boðið verður upp á grillmat, þá verður kastsýning og veiðistaðaráðgjöf. Allir félagsmenn sem koma geta skráð sig í happdrætti og verða fjórir vinningar í boðið, veiði eftir hádegi í Elliðaánum opnunardaginn 20. júní.
Dagskráin:
- Frá kl. 17-19.30: Grill og gos - Pylsur á grillinu og allir fá gos með. Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, grillar.
- Klukkan 18: Jói í Veiðihorninu verður með kastsýningu á einhendu og tvíhendu, landsfrægur kastari hér á ferð. Sýniningin fer fram á túninu við hliðina á bílastæðinu við skrifstofuna.
- Veiðistaðaráðgjöf - Veiðiráðgjafar sitja fyrir svörum um veiðistaði í Norðurá, Langá, Laxá í Dölum, Nessvæðinu í Aðaldal og Elliðaánum. Gott verður að leita til þeirra um hvernig eigi að veiða þessar ár.
- Klukkan 18.55: Happahylurinn - Dregnir fjórir vinningar úr happahylnum, veiðileyfi eftir hádegi opnunardaginn í Elliðaánum, 20. júní. Eingöngu félagsmenn eru gjaldgengir í happahylinn.
- Klukkan 19-19.30: Veiðistaðir í Elliðaánum - Dagskráin endar á gönguveiðistaðaleiðsögn í Elliðaánum, frá Ullarfossi og niður í ós.