Alls voru 2.666 fiskar komnir á land þann 4. júlí síðast liðinn sem er svipuð veiði og í fyrra en þann 6. júlí þá voru 2.705 fiskar komnir að landi. Þetta kemur fram í tölum frá Þorsteini Þorsteinssyni frá Skálpastöðum og birtar eru á angling.is.
Veiði er loks hafin í öllum lykilánum en júlí er víða talinn vinsælasti mánuður laxveiðitímabilsins. Á angling.is kemur fram að síðustu viku hafi 1.414 laxar komið að landi á móti 1.323 löxum í fyrra. Aukningin er um 7 prósent og er greinilegt að hafbeitarárnar eru að gefa mun fleiri laxa nú.
Mikill vatnsskortur er í ám á vestur- og norvestur landinu vegna þurrka og dregur það líklega eitthvað úr aflabrögðum. Þó er ár á þessum svæðum þar sem veiði hefur verið mun meiri en í fyrra, Flókadalsá í Borgarfirði hefur sem dæmi um það bil tvöfaldað veiðina frá í fyrra og í opnuninni í Miðá í Dölum veiddust 50 laxar á þrjár stangir fyrstu fimm dagana.
Tíu aflahæstu árnar þann 4. júlí:
Norðurá 352
Blanda 243
Elliðaárnar 238
Haffjarðará 237
Langá 215
Eystri-Rangá 167
Þverá + Kjarará 160
Brennan (Í Hvítá) 149
Selá í Vopnafirði 147
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 140
Flókadalsá, Borgarf. 111
Haukadalsá 109
Heldur betri byrjun en í fyrra
