Gamli Inter-maðurinn var hetja AC Milan í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2012 08:00 Giampaolo Pazzini fagnar alltaf eins. Mynd/AFP
Giampaolo Pazzini, var hetja AC Milan, í sínum fyrsta leik í byrjunarliði liðsins í gær þegar AC Milan vann 3-1 sigur á Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni. Pazzini skoraði öll þrjú mörk AC Milan þar af tvö þeirra á síðustu þrettán mínútum leiksins. Pazzini kom til AC Milan frá Internazionale fyrir tímabilið og var varamaður þegar AC Milan tapaði 0-1 á móti Sampdoria í fyrstu umferðinni. Pazzini kom til Internazionale frá Sampdoria 2011 og var með 16 mörk í 50 leikjum með Inter undanfarin tvö tímabil. Hann er 28 ára gamall framherji sem er þekktastur fyrir að hreyfa sig vel án bolta og skora með skalla. Giampaolo Pazzini kom AC Milan í 1-0 úr vítaspyrnu á 16. mínútu en Alessandro Diamanti jafnaði úr víti þremur mínútum fyrir hálfleik. Pazzini tryggði síðan AC Milan fyrsta sigur tímabilsins með því að skora á 77. og 85. mínútu. Fyrra markið kom eftir mistök markvarðar Bologna en það seinna af stuttu færi. Nigel de Jong kom inn á sem varamaður fyrir Riccardo Montolivo á 41. mínútu og lék sinn fyrsta leik með liðinu.
Ítalski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Sóley Margrét heimsmeistari Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Aron Einar miðvörður í Niksic Í beinni: Svartfjallaland - Ísland | Gætu fellt Svartfellinga Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Sjá meira