Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur er greint frá því að veiðin í Dunká sé þegar orðin betri en í fyrra en félagið tók við ánni í ár.
"Fyrir viku síðan voru komnir 108 laxar úr Dunká. Þetta er meiri veiði en í fyrra þegar að áin skilaði um 100 laxa veiði. Veitt er út mánuðinn í Dunknum og því nógur tími til stefnu," segir á vef SVFR. "Haustið er oft á tíðum drjúgt í smáánum í Dölunum og því von til þess að nokkuð bætist við veiðitölurnar. Enn eru laus holl í þessari skemmtilegu laxveiðiá á haustdögum."
Svo virðist sem ágætis líf sé í Gljúfurá í Borgarfirði um þessar mundir. Á vef Stangaveiðifélagsins segir frá veiðimönnum sem voru komnir með átta laxa á hádegi í gær eftir tvær vaktir. Meirihluti þeirra var tekin á flugu.
Ennfremur er greint frá því að veiði í Straumunum, ármótum Norðurár og Hvítár, sé lokið.
"Fyrstu fréttir benda til þess að veiðin í sumar hafi verið góð, og sá mikli samdráttur sem var í veiði í Borgarfirðinum hafi ekki komið jafn illa niður á ármótasvæðunum Brennu og Straumum. Ef eitthvað er þá skila þessi tvö stuttu veiðisvæði líklegast einna bestu meðalveiði á stöng á landsvísu. Óstaðfestar fréttir eru að Straumarnir hafi skila hátt í 300 löxum á tvær dagsstangir í sumar," segir vef SVFR. Við þetta er því að bæta að 325 laxar voru komnir á land í Brennunni þann 5. september síðastliðinn.
trausti@frettabladid.is
Dunká betri en í fyrra - Veiði lokið Straumunum
