Michael Schumacher, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, verður gert að ræsa tíu sætum aftar á ráslínu í Japan vegna árekstursins sem hann olli í kappakstrinum í Singapúr í dag.
Schumacher sagðist gruna að bilun í bremsunum hafi ollið því að hann hafi ekið aftan á Torro Rosso-bíl Jean-Eric Vergne. Fréttaskýrendur og aðrir sem greint hafa atvikið af sjónvarpskjánum bentu á að atvikið væri furðulegt og varla við Schumacher að sakast.
"Ég byrjaði að bremsa áður en ég kom að bremsupunktinum," sagði Schumacher eftir mótið í dag. "Bíllinn vildi ekki hægja á sér. Það er ekki eins og ég hafi byrjað að bremsa of seint."
Ef myndbandsupptökur eru skoðaðar af atvikinu sést að vinstra framhjól Mercedes-bílsins læsist á undan hægra framhjólinu. Það er gegn allri eðlisfræði sem liggur að baki því að hljólin læsist þegar bremsað er. Í þessu tilviki er verið að bremsa fyrir hægri beygju og því ætti hægra framhjólið að læsast fyrr, ef eitthvað á að læsast yfir höfuð.
Bæði framhjólin eru svo læst í örskamma stund áður en áreksturinn verður og Schumacher aðeins farþegi og getur ekkert gert.
Úrskurður dómaranna í Singapúr gildir og því mun Schumacher færast aftur um tíu sæti á ráslínu í Japan óháð því hversu fljótur hann er í tímatökunni.
Myndband af atvikinu má sjá hér að ofan.
Schumacher refsað fyrir árekstur
Birgir Þór Harðarson skrifar
Mest lesið

Staðfestir brottför frá Liverpool
Enski boltinn



Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“
Fótbolti


„Þær eru stærri en við erum drullusterkar“
Körfubolti

„Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“
Körfubolti

Þorleifur snýr heim í Breiðablik
Íslenski boltinn

Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar
Formúla 1
