Birgir Leifur í erfiðri stöðu á úrtökumótinu í Flórída Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 15. nóvember 2012 09:19 Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson er í erfiðri stöðu þegar keppni er hálfnuð á öðru stigi úrtökumótsins fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Birgir lék á 73 höggum í gær á Plantation Preserve vellinum í Flórída eða 2 höggum yfir pari vallar. Birgir lék fyrsta hringinn af alls fjórum á 70 höggum og er hann því samtals á +1. Þetta skor skilar Birgi í 61.-65. sæti en alls komst 19 kylfingar af þessum velli á lokaúrtökumótið. Keppni lýkur á morgun, föstudag, en þriðji keppnishringurinn verður leikinn í dag. Skor efstu manna á Plantation Preserve er mjög gott en Rob Oppenheim er efstur á -12. Þeir sem eru jafnir í 18.-27. sæti eru allir á 4 höggum undir pari eða 5 höggum betri en Birgir. Nokkrir þekktir kappar eru á meðal keppenda á þessum velli. Sænski kylfingurinn Jesper Parnevik er án efa þekktastur þeirra. Hann er á parinu samtals eftir að hafa leikið báða hringina á 71 höggi.
Golf Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Fleiri fréttir Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira