Skiptar skoðanir eru meðal veiðimanna um þá ákvörðun Stangaveiðifélags Reykjavíkur að lengja tímabilið sem veiði á maðk er leyfileg í Laxá í Dölum.
Veiðin í Laxá á Dölum hefur verið niður á við síðustu árin. Í sumar veiddust aðeins 369 laxar á stangirnar sex sem þykir afleitt í á sem hefur skilað um 1.000 laxa meðalveiði. Sumarið 2011 komu 568 laxar á land.
Vegna þessarar þróunar og minnkandi áhuga veiðimanna á Laxá kynnti SVFR breytingar sem laða eiga menn að ánni næsta sumar. Auk þess að afnema fæðisskylduna verður tímabilið sem maðkaveiði er leyfð í ánni lengt um fjórar vikur. Þannig má veiða á maðk strax frá 20. júlí í stað 17. ágúst.
Almenn hrifning virðist vera meðal veiðimanna vegna afnáms fæðisskyldunnar en aukin maðkaveiði fer vægast sagt misjafnlega í mannskapinn. Sumir segja að nær hefði verið að ganga lengra í þá átt að hlífa stofninum í ánni fyrir veiðiálagi. Aðrir benda á að dagskvótinn verði minnkaður úr tíu löxum í sex.
Fjörugar umræður um þetta hafa verið í Facebook-hópi sem nefndur er Veiðidellan er frábær. Þessum skoðanaskiptum voru gerð skil í upphaflegri útgáfu þessarar frásagnar en þau hafa nú verið fjarlægð úr fréttinni að ósk stofnanda hópsins.
gar@frettabladid.is

