Kosið verður í fyrstu stjórn Akstursíþróttasambands Íslands á stofnþingi sambandsins á morgun.
Á vormánuðum 2008 setti ÍSÍ á stofn nefnd um akstursíþróttir. Nefndin var sett á laggirnar í nánu samstarfi við aðildarfélög ÍSÍ og Landssamband akstursíþróttafélaga (LÍA) og starfar undir vinnuheitinu „Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA". Markmið nefndarinnar var að vinna að málefnum akstursíþrótta og undirbúa stofnun akstursíþróttasérsambands.
Akstursíþróttafélög eða deildir eru starfandi innan eftirtalinna héraðssambanda/íþróttabandalaga ÍSÍ: Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, Ungmennasamband Kjalarness, Íþróttabandalag Reykjanessbæjar, Íþróttabandalags Akureyrar, Héraðssamband Skarphéðinn og Ungmennasambands Skagafjarðar.
Með stofnun Akstursíþróttasambands Íslands verða sérsambönd ÍSÍ orðin 29 talsins.
