
Mistök á að leiðrétta
SinnaskiptiÞetta þykir mér undarlegur málatilbúnaður. Í þessu máli gilda ekki flokkslínur og eiga ekki að gilda nú frekar en haustið 2010, þegar þingsályktun um málið var samþykkt á þingi. Í þeirri atkvæðagreiðslu voru fylkingar ekki skýrari en svo að bæði Framsókn og Samfylking klofnuðu í afstöðu sinni og ráðherrar í ríkisstjórn greiddu ekki atkvæði á einn veg.
Ráðherrar Samfylkingar greiddu atkvæði gegn málshöfðun gegn Geir H. Haarde, en við, ráðherrar og þingmenn VG, vorum fylgjandi. Ef þessir ráðherrar Samfylkingarinnar töldu málshöfðun ranga þá, hví ættu þeir að vera henni fylgjandi nú? Og hvers vegna í ósköpunum að ætla að stjórn og stjórnarandstaða muni nú takast á um málið á flokkspólitískum forsendum – þar sem mætist „stálin stinn“? Það sem hins vegar hefur átt sér stað eru sinnaskipti hjá einhverjum okkar í VG og hugsanlega einnig í Framsóknarflokknum að því er mér skilst. Um sinnaskipti andstæðinga málshöfðunar hef ég ekki heyrt. Ég tala að sjálfsögðu aðeins fyrir sjálfan mig þegar ég geri grein fyrir eigin sinnaskiptum.
Einn stjórnmálamaður sekur?Við atkvæðagreiðsluna um málshöfðun gegn Geir H. Haarde gerðist það að atkvæði féllu þannig að allir Samfylkingarráðherrar voru undanþegnir málssókn en Geir H. Haarde var látinn standa einn eftir. Einstakir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði að því er virtist, sitt á hvað. Niðurstaðan varð hins vegar flokkspólitísk: Enginn samfylkingarráðherra var ákærður, aðeins einn sjálfstæðismaður, Geir H. Haarde. Honum skyldi ætlað einum að axla samanlögð pólitísk mistök Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar í aðdraganda hrunsins!
Við þetta varð að mínu mati eðlisbreyting á þessu máli sem af hálfu okkar margra í VG, var hugsað sem prófsteinn á ábyrgð „stjórnmálanna“.
Glæpsamleg ásetningsbrot?Niðurstaðan varð hins vegar sú að einn maður átti nú að svara – með fangelsisdóm yfir höfði sér – fyrir allt sem úrskeiðis hafði farið í áralöngum aðdraganda hrunsins þar sem fjöldi manns hafði komið að verki, með beinum eigin aðgerðum eða aðgerðarleysi sínu. Í mínum huga er undirgefni við valdið engu síður ámælisverð en sjálf valdbeitingin. Ákæran gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi snýr að því að hann hafi sýnt af sér andvaraleysi og ekki sinnt samráði sem skyldi.
Ég hef orðið var við að margir halda að um það sé að ræða að Landsdómur fáist við rannsókn á því sem gerðist á landamærum glæpsamlegra ásetningsbrota annars vegar og pólitískra axarskafta hins vegar. Svo er ekki. Það eru axarsköftin sem eru til skoðunar og auk þess þröngt afmökuð í aðdraganda hrunsins. Hins vegar er ekki að undra að fólk haldi að miklu meira sé undir, því krafist er fjársektar og fangelsisvistar, allt að tveimur árum. Í vitund manna og þegar málið verður skoðað í sögulegu ljósi síðar meir er hætt við að það taki á sig stærri mynd. Sú mynd er á ábyrgð okkar sem að þessu stöndum.
SýndaruppgjörPólitísk afglöp geta verið afdrifarík eins og tvímælalaust átti við um stjórnarstefnuna og ákvarðanir í veigamiklum efnum á árunum í aðdraganda hrunsins, allar götur frá því framsal á kvóta var heimilað, bankarnir einkavæddir og tekið var til við að kynda undir græðgisæðið. „Virkjum eignagleðina“, sagði Davíð Oddsson í upphafi valdaferils síns. Heilir stjórnmálaflokkar, fjölmiðlar og stjórnsýslan að nokkru leyti, tóku í kjölfarið að stíga hinn tryllta dans peningahyggjunnar.
Sem áður segir tel ég að við fyrrnefnda atkvæðagreiðslu á þingi hafi orðið eðlisbreyting á málinu. Geir H. Haarde átti nú einn í reynd að svara til siðferðilegrar ábyrgðar fyrir allt það sem úrskeiðis hafði farið á hinum pólitíska vettvangi í löngum aðdraganda hrunsins þar sem margir höfðu komið við sögu. Eftir á að hyggja tel ég að mistök okkar sem greiddum þessari málssókn atkvæði séu mikil. Óháð niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar tel ég að við höfum farið villur vegar í málinu öllu. Réttarhöld yfir nokkrum einstaklingum vegna andvaraleysis þeirra og mistaka, geta í mínum huga aldrei orðið annað en sýndaruppgjör við skipbrot pólitískrar kreddu sem kjósendur studdu aftur og ítrekað.
Nú er hvíslaðÞað er athyglisvert að ýmsir sem komu að stjórnmálum í aðdraganda hrunsins hvísla því nú í eyru okkar að fráleitt sé að stöðva þessa málsókn: Það þurfi nefnilega að gera málin upp!
Með þessum réttarhöldum er í mínum huga ekki verið að gera eitt eða neitt upp. Það kann hins vegar að vera að með þessum málatilbúnaði gerist hið gagnstæða, við látum afvegaleiðast í uppgjöri við fjármálakerfið og pólitísk afskipti af því og einkavæðingu á verðmætum samfélagseignum, þar sem einstaklingar högnuðust persónulega.
Ekkert af þessu á við um Geir H. Haarde. Hann framfylgdi hins vegar pólitískri kreddu sem bjó í haginn fyrir hina raunverulegu svindlara.
Hrunverjar á þingiStjórnmálin eiga enn eftir að draga lærdóma af hruninu með því að breyta vinnubrögðum sínum. Það mun gerast þótt það virðist ætla að taka lengri tíma en ég hafði trúað. Skýrsla þingmannanefndarinnar undir formennsku Atla Gíslasonar sneri fyrst og fremst að breyttum vinnubrögðum Alþingis og ríkisvalds, horfði með öðrum augum fram á veginn en ekki aftur.
Í anda skýrslunnar þurfum við sem skipum stjórnarmeirihlutann á Alþingi að horfa með gagnrýni á eigin gjörðir og stjórnarandstaðan, sem að uppistöðu til eru hrunverjarnir sjálfir, mætti tala af ögn meiri hógværð en hún gerir og sýna þannig að hún ætli í raun og veru að horfast í augu við sjálfa sig og pólitíska fortíð sína.
Skoðun

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar