Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2012 07:00 Þórir Ólafsson. Mynd/AFP
Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolta eftir 27-25 sigur á Wisla Plock Ssa í þriðja leik lokaúrslitanna. Þórir var markahæstur í liði Kielce með sex mörk en liðið vann úrslitaeinvígið 3-0. Þórir er því tvöfaldur meistari á sínu fyrsta ári með pólska liðinu. „Þetta var kannski ekki auðvelt hjá okkur en þægilegt," sagði Þórir. „Maður var kannski kominn með leiða á því að vera alltaf fyrir neðan miðju og í botnbaráttunni. Það er langt síðan maður hefur fengið að kynnast því að vera ofarlega og vinna titla eða bara síðan maður var í Haukunum. Þetta var samt öðruvísi núna enda maður orðin eldri. Það er alltaf sætt að klára svona titla og það breytist aldrei," sagði Þórir sem vann Íslandsmeistaratitilinn með Haukum þrjú ár í röð 2002-2005. „Auðvitað var þetta mikil breyting að skipta í annað land og í aðra deild en ég sé ekkert eftir því. Það togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla. Þetta er búið að vera frábært. Maður vissi að það yrði mikil samkeppni en ég er búinn að fá ágætis traust frá þjálfaranum og fá að spila marga mikilvæga leiki," sagði Þórir.
Handbolti Mest lesið Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki Fótbolti Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira