

Íslandsbanki illa flæktur í hugmyndastuld?
Staðreyndin er sú að þegar Birna Einarsdóttir gegndi stöðu markaðsstjóra boðaði hún mig á fund til að kynna fyrir sér og markaðsdeild Íslandsbanka hugmyndavinnu er nýst gæti til markaðssóknar. Á þeim fundi lagði ég fram kynningarbæklinginn „Reiknaðu með okkur" er gerði ítarlega grein fyrir markaðsherferð undir því slagorði.
Hugmyndavinna mín snerist um slagorðið og gríðarleg áhersla var lögð á að ljá því reikningslega tengingu að undangenginni auglýsingaherferð. Þannig átti að undirstrika að viðskiptavinir gætu leitað til bankans og reiknað dæmin/lánin sín með honum. Í kynningarbæklingnum var m.a. lagður grunnur að ýmsum auglýsingahugmyndum þar sem slagorðið öðlaðist hinn reikningslega blæ. Markaðsherferð Ergo, sem hófst árið 2011, byggist á sömu nálgun, nefnilega að viðskiptavinirnir geta reiknað dæmin sín með Ergo undir slagorðinu „Reiknaðu með okkur". Auk þess enda allar auglýsingar Ergo á umræddu slagorði. Innsta kjarna minnar hugmyndavinnu hafði augljóslega verið stolið að áliti þeirra sem til málsins þekkja.
Eðlilega hnykkti mér óþægilega við þegar markaðsherferð Ergo var ýtt úr vör. Og þar sem um fyrirlitlegan hugmyndastuld var að ræða að mínu mati sendi ég erindi til Birnu Einarsdóttur sem og framkvæmdastjóra Ergo, Jóns Hannesar Karlssonar, og sagði mínar farir ekki sléttar. Að undirlagi Birnu boðaði Jón Hannes mig á fund sem ég taldi að ætti að snúast um leiðréttingu á hlut bankans gagnvart mér. En það var öðru nær, því hann hafði ekki meiri manndóm í sér en að mæta til leiks vopnaður lögfræðingi bankans, sem kom mér algjörlega í opna skjöldu. Nánast frá fyrstu mínútu reyndu þeir félagarnir að verja hendur bankans með dæmafáum málatilbúnaði.
Vel samstilltir lögðu þeir áherslu á að hugmyndavinna mín hefði orðið djúpi gleymskunnar að bráð enda flestir starfsmenn bankans marghrjáðir af minnisleysi. Markaðsdeildin hefði aftur á móti, í samvinnu við auglýsingastofu úti í bæ, orðið fyrir eins konar vitrun og alveg óvart og fyrir hreina hendingu „enduruppgötvað" mína hugmyndavinnu upp á eigin spýtur!
Ég skrifaði Birnu Einarsdóttur harðort bréf og kvartaði undan hraklegum málatilbúnaði Jóns Hannesar enda óásættanlegt að hugmyndavinna mín hefði orðið „enduruppgötvun" Íslandsbanka að bráð. Birna svaraði erindi mínu með því að taka það úr höndum Jóns Hannesar og vísa því til næsta undirmanns, nefnilega Hólmfríðar Einarsdóttur eins af eftirmönnum sínum í starfi markaðsstjóra. Hún þræddi sömu villigötu og Jón Hannes en viðurkenndi þó aðkomu markaðsdeildarinnar að markaðsherferðinni. Skárra væri það nú! En allir höfðu víst sett upp helgisvip þegar hugmyndavinna mín var nefnd á nafn. Athyglisvert var að hún lagði ríka áherslu á að hvítþvo Birnu Einarsdóttur af markaðsherferð Ergo.
Viðbrögð Birnu Einarsdóttur við erindi mínu hefðu átt að vera svo auðgefin að venjulega menn setur hljóða þegar þeir frétta hvernig hún brást við. Stöðugt vísaði hún erindi mínu til undirmanna sinna sem áttu að sjá um að þvo hendur hennar af öllum ósómanum. En samt er engum öðrum starfsmanni bankans málið skyldara enda hafði hún verið vel fóðruð á umræddri hugmyndavinnu bæði skriflega og munnlega. Og hún grandskoðaði mínar hugmyndir í meira en fjórar vikur. Í stað þess að leysa málið með samkomulagi bauð hún upp á málflutning sem ekki stendur til boða í samfélögum sem kenna sig við góða siði. Hún stýrði vörn bankans og lét aðstoðarmenn sína skjóta þeim skildi fyrir sig að bankinn hefði fyrir hreina tilviljun „enduruppgötvað" mína hugmyndavinnu. Og það væri í góðu lagi meðan uppgötvunin væri klædd dulargervi gleymskunnar! Er hægt að komast á lægra plan siðgæðis?
Að lokum: Eftir tiltölulega stutta fundarsetu með Jóni Hannesi, framkvæmdastjóra Ergo, sleit ég fundinum enda ljóst orðið hver ásetningur hans var. Auk þess var ég ekkert sérstaklega vel upplagður til að kynna mér þá yfirnáttúrulegu hæfileika sem markaðsbændur bankans búa yfir. Sem felast helst í því að þeir eru gæddir þeirri náðargáfu að „enduruppgötva" hugmyndavinnu annarra, sér í lagi ef þeir hafa verið fóðraðir á henni áður. Legg ég til að bankinn taki upp slagorðið „Enduruppgötvaðu með okkur" sem væri lýsandi táknmynd fyrir framúrskarandi færleika bankans á sviði enduruppgötvana. Þessi ráðlegging er algjörlega ókeypis af minni hálfu.
Skoðun

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Rödd friðar á móti sterkum her
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Leiðtogi nýrra tíma
Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir
Erna Bjarnadóttir skrifar

Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza
Kristján Þór Sigurðsson skrifar