

Martröð Eldvarpavirkjunar eða draumurinn um "Eldhringinn“?
Af hverju yrði hún heimskulegur, siðlaus og óskiljanlegur umhverfisglæpur?
Það er vegna þess að með virkjun Eldvarpa á ekki aðeins að umturna og eyðileggja gígaröð, einstætt náttúruverðmæti, heldur líka að stytta endingartíma sameiginlegs jarðhitageymis Eldvarpa og Svartsengis úr 50 árum niður fyrir 30 ár en fullyrða samt að um sé að ræða endurnýjanlega orkunýtingu sem fyrirmynd fyrir heimsbyggðina!
Þetta eru ekki upphrópanir út í loftið, vísindaleg gögn liggja fyrir þessu.
Og það á líka að ráðast á svipaðan hátt á næstu gígaröð, Sveifluháls, austan Eldvarpa, sem hefur á sér form svonefndra móbergshryggja, en þeir eru gígaraðir sem mynduðust undir jökli. Og þá er spurt: Hvaða máli skiptir það?
Og svarið er einfalt: Hvergi á þurrlendi jarðar er að finna gígaraðir eins og á Íslandi.
Í þeim speglast sköpun nýs lands á skilum meginlandsflekanna, nokkuð sem hvergi sést nema hér. Flestar gígaraðir á Íslandi, móbergshryggirnir, urðu til undir ísaldarjökli, en aðeins fáar gígaraðir eru til sem mynduðust í eldgosum eftir ísöld og eru eins reglulegar og fallegar og Eldvörp.
Draumurinn um „Eldhringinn"
Allir kannast við „Gullna hringinn". En ég á mér draum um „Eldhringinn" eða „Rauða hringinn". Og af því að flestir kannast við lag Johnny Cash, Ring of Fire, mætti annaðhvort kalla Eldhringinn því nafni á ensku eða „Red circle". Ferðalag um Eldhringinn myndi hefjast við „gjána á milli heimsálfanna", aðeins fáa kílómetra frá stærsta alþjóðaflugvelli landsins, og halda áfram við Eldvörp, sömuleiðis fáa kílómetra frá flugvellinum. Þar sæi fólk að mestu ósnortið svæðið með þessari fallegu röð átján gíga, sem varð til í augsýn fólksins sem hér bjó fyrir tæpum 800 árum.
Einnig fornminjar, sumar frá tímum Tyrkjaránsins, og gönguleiðir vermanna fyrri alda og fólk gæti upplifað forna tíma baráttu fátækrar þjóðar við óblíða náttúru, „survival", æ eftirsóttari tegund ferðamennsku í fágætu umhverfi. Sömuleiðis byrjað að upplifa þá landsköpun og hamfarir, sem gígaröðin vitnar um. Síðan yrði farið austur að Krýsuvík og Sveifluhálsi til að sjá ummerki eftir sams konar eldvirkni undir jökli.
Á leið til Reykjavíkur mætti bæta við Sogunum við Trölladyngju, en fara þarf austur í Landmannalaugar eða upp í Kerlingarfjöll til að sjá viðlíka gil. Ef útlendur gestur væri tímabundinn, léti hann þetta nægja, en vissi þó að þetta væri aðeins upphaf Eldhringsins og því full ástæða til að koma aftur til Íslands eða lengja ferðina, því að næsti áfangastaður Eldhringsins yrði gossvæði Kröfluelda, Leirhnjúkur-Gjástykki.
Þar blasa við enn magnaðri og skýrari ummerki um „sköpun jarðarinnar", sem hvergi er að sjá annars staðar í víðri veröld, auk fyrirhugaðs æfingasvæðis fyrir marsfara framtíðarinnar. Hægt að sjá kvikmyndir, ljósmyndir og vitnisburði þeirra sem upplifðu þessar hamfarir og lifa sig inn í það í leiðinni. Eldhringnum yrði síðan lokað í Lakagígum í mögnuðustu gígaröð jarðar og þá kemur sér vel að hafa komið áður í Gjástykki.
Óafturkræf spjöll
Nú má sjá í rammaáætlun að gefin hefur verið út sú aftökuskipun á Eldvörp að gera þau að virkjunarsvæði í stíl Hellisheiðarvirkjunar og sóa jarðvarma svæðisins á innan við 30 árum í stað 50. Einnig á að gera Sveifluháls, Krýsuvík og Trölladyngju að virkjanasvæði og fara það langt með virkjanir inn á Leirhnjúks-Gjástykkissvæðið að það yrði laskað verulega. Allt óafturkræf spjöll. Þetta er ekki aðeins botnlaus græðgi heldur brot gegn þeim ungu Íslendingum, sem neyða á til að taka við Eldvarpasvæðinu lemstruðu og ónýtu eftir 30 ár og hinum svæðunum ónýtum eftir 50 ár og fá engu um það ráðið. Að ekki sé talað um þær milljónir Íslendinga sem ófæddir eru.
Þetta er hróplegt brot á skuldbindingum okkar í Ríósáttmálanum um sjálfbæra þróun og heitir rányrkja á góðri íslensku. Aðeins sjálfhverfar kynslóðir ástunda þann meðvitaða þjófnað og glæp að skila landinu með græðgi og rányrkju verra til afkomendanna en þær tóku við því og brjóta með því gegn jafnrétti kynslóðanna, sem er stærsta og mikilvægasta réttlætismál mannkynsins á 21. öldinni og forsenda þess að lifa af. Ég á mér að vísu draum um Eldhringinn. En stærri er draumurinn um heiður Íslands, jafnrétti kynslóðanna og framtíð Íslendinga og mannkynsins.
Skoðun

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Rödd friðar á móti sterkum her
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Leiðtogi nýrra tíma
Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir
Erna Bjarnadóttir skrifar

Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza
Kristján Þór Sigurðsson skrifar