
Þjóðkirkjan og samkynhneigð
Þegar ég les grein eins og Sifjar Sigmarsdóttur hér í blaðinu 19.12.2012, verður mér hugsað til þess hvort Þjóðkirkjan (ÞK) þurfi ekki að setja upp námskeið sem upplýsi og haldi til haga því mikla ferli sem fór fram innan hennar frá því lög um staðfesta samvist 1996 tóku gildi og þar til ein hjúskaparlög urðu til. Það ríkir mikil fáfræði á meðal margra sem skrifa og tala um það risaskref sem ÞK tók á þessum 15 árum.
Samræða og viðhorf
Málefni samkynhneigðra hafa löngum verið viðkvæm og því miður láðist ÞK að takast skörulega á við það strax 1996. En fljótlega upp úr lögunum um staðfesta samvist var gert helgisiðaform til blessunar fyrir sambönd samkynhneigðra. Það voru umræður í hópum innan kirkjunnar en það var ekki fyrr en eftir 2005 sem prestar fóru að ræða þetta markvisst. Málstofur voru haldnar m.a. í samvinnu við samkynhneigða. Fræðimenn í gamla- og nýjatestamentisfræðum unnu ítarlega vinnu (http://kirkjan.is/samkynhneigdogkirkja/). Kristnir siðfræðingar kynntu mismunandi stefnur um málið sem lýstu viðhorfum allt frá því að munur sam- og gagnkynhneigðra væri sá sami og munur örvhentra og rétthentra til þess viðhorfs að samkynhneigð væri röng. Auk þess kom fram að lúterskar kirkjur um víða veröld væru sama eining sem hefði mjög ólíka nálgun á málefnið, þar gæti myndast spenna allt eftir niðurstöðu. Þetta voru prestar og biskupar með í fanginu þegar þeir unnu að því að móta stefnu ÞK til framtíðar ásamt leikmönnum. Inn í þessa mynd þarf að taka að ÞK er öllum opin og á því ekki að ýta einum eða öðrum hóp út. Henni ber að taka samkynhneigðum opnum örmum, hún verður líka að vera opin fyrir mjög íhaldssama sem og frjálslynda. ÞK rúmar því margar skoðanir. Samþykktin gat ekki verið þannig að einungis einn viðhorfahópur fengi inni. Með því að hafna algjörlega tilverurétti íhaldssamra presta og almennings þá væri kirkjan að bregðast þeim hópi. Margir íhaldssamir borgarar lýstu skoðun sinni við mig en það gerðu einnig þeir frjálslyndu.
Niðurstaða prestastefnu
Tvær prestastefnur voru undirlagðar af samræðunni um málefni samkynhneigðra (2006-2007). Niðurstaðan var afgerandi, góður meirihluti presta samþykkti helgisiðaform er lyti að staðfestingu samvistar. Á kirkjuþingi 2007 (þar situr safnaðarfólk, prestar, biskupar o.fl.) var samþykkt: „…Ef lögum um staðfesta samvist verður breytt þannig að trúfélög fái heimild til að staðfesta samvist þá styður Kirkjuþing það að prestum Þjóðkirkjunnar, sem eru vígslumenn að lögum, verði það heimilt. Kirkjuþing leggur áherslu á að frelsi presta í þessum efnum verði virt."
Skrefið sem íslenska ÞK tók til samþykkis við réttindi samkynhneigðra var risastórt og stærra en nánast allra lúterskra kirkna í veröldinni. Á prestastefnu 2010 lýstu 90 prestar og djáknar því yfir að þeir vildu ganga enn lengra (en það er nær tveir þriðjungar stéttanna). Síðan hafa nokkrir prestar unnið ötullega að málefnum samkynhneigðra í ræðu og riti. Það fer því fyrir brjóstið á mér þegar tönnlast er á því að prestar ÞK gangi fram í fordómum gagnvart samkynhneigðum.
Stundum mistekst okkur
Samlíking Sifjar á hjónavígslu og afgreiðslu vöru yfir búðarborð er vart svara verð. Hjónavígsla er löggjörningur með pappírum og réttri undirskrift, undirbúningur, samtal og athöfn um mikilvægi og gildi góðs hjónalífs. Þó að ég beri sömu virðingu fyrir barni og fullorðnum þá gifti ég ekki barnið. Virðing mín er engu minni fyrir samkynhneigðum en fyrir öðrum, ég er tilbúin að gefa þá saman og ég finn til undan því þegar þeim er sýnd mannvonska eða fordómar. Því miður hefur kirkjan stundum brugðist þeim og það er leitt að þar finnast fordómar eins og annars staðar.
Viðhorf trúaðra fer m.a. eftir kennivaldi og túlkun Biblíunnar, þar er mismunandi nálgun og skilningur sem hefur áhrif á túlkun þeirra. Við þurfum að mæta öllum af elsku hins alvitra, sýna breidd, umfaðma og umvanda. Heilindi þeirra sem ganga í hjónaband skiptir mestu. Þar eru ást, virðing, réttlæti og trúfesti hornsteinninn sem allt annað á að meta út frá. Þó að nú sé tíska að henda eggjum og grjóti orðanna í ÞK þá er þörf að kynna sér málin fyrst.
Skoðun

Löggjafinn brýtur á skólabörnum (grein 1)
Valdís Ingibjörg Jónsdóttir skrifar

Strandveiðar – nýliðun hægri vinstri
Steindór Ingi Kjellberg skrifar

Reykurinn sást löngu fyrir brunann!
Davíð Bergmann skrifar

Angist og krabbamein
Auður E. Jóhannsdóttir skrifar

Jens er rétti maðurinn í brúna!
Anton Berg Sævarsson skrifar

Stuðningur fyrir börn í vanda getur verið lífsbjörg
Stefán Guðbrandsson skrifar

Lukka Sjálfstæðisflokksins
Inga María Hlíðar Thorsteinson skrifar

Silja Bára, öruggur og faglegur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands
Margrét Gíslínudóttir skrifar

Má skera börn?
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Aðför að menntakerfinu
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Er íslenska þjóðin að eldast?
Þorsteinn Þorsteinsson skrifar

Áslaug Arna er framtíðin og sóknarfærið er ungt fólk
Sybil Gréta Kristinsdóttir skrifar

Silja Bára, öruggur og faglegur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands
Margrét Gíslínudóttir skrifar

Hvert fer kílómetragjaldið mitt?
Jokka G Birnudóttir, #2459 skrifar

Opið bréf til Nannýjar Örnu Guðmundsdóttir fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Jóhanna Ása Einarsdóttir,Gerður Einarsdóttir,Helga Björk Jóhannsdóttir,Margrét Skúladóttir,Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar

Eyðileggjandi umræða
Guðný Pálsdóttir,Súsanna Margrét Gestsdóttir skrifar

Lýðræðið sigrar
Snorri Ásmundsson skrifar

Innleiðing fjárhagskerfa skilar í 70% tilfella ekki tilætluðum árangri
Stefán Ingi Arnarson skrifar

Tækifæri til að ljúka mannréttindamáli Þorsteins Pálssonar frá síðustu öld
Bergur Hauksson skrifar

Aðalvandamálið við máltileinkun innflytjenda!
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar

Lítil breyting sem getur skipt sköpum!
Arnar Steinn Þórarinsson skrifar

Fara mínir kennarar að vinna í Kópavogslaug? Opið bréf til bæjarstjóra
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Sósíalistaflokkurinn styður Úkraínu
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Það er samkeppni innan opinbera geirans um starfskrafta kennara
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur!
Bjarni Þór Sigurðsson skrifar

Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR?
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Kjarkur og kraftur til að breyta
Áslaug Hulda Jónsdóttir,Eydís Arna Líndal skrifar

Fjórföldun á stuðningi við Guðrúnu
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Góður fyrsti aldarfjórðungur
Jón Guðni Ómarsson skrifar

Af hverju stríð?
Helga Þórólfsdóttir skrifar