Þeir sem ætla í veiði á Norðausturlandi geta stytt ferðatímann til muna með því að fljúga austur og leigja bíl hjá Veiðibílum ehf.
Veiðibílar leigja út bíla til veiði meðal annars fyrir Laxá í Aðaldal og Vopnafjörð og er kostnaðurinn um 20 þúsund á dag fyrir hvern bíl.
Meðal þeirra sem eru í samstarfi við Veiðibíla er Veiðiþjónustan Strengir ehf.
"Mörgum þykir langt að fara austur í Breiðdalsá og Jöklusvæðið og bæði tími og eldsneyti kostar sitt. En það er lausn á þessu vandamáli með því einfaldlega að fljúga til Egilsstaða og taka jeppa á leigu og þar með eru menn komnir í Jöklu á innan við tveim tímum frá Reykjavik, og rúmlega það í Breiðdalinn," segir á vef Strengja.
Nánari upplýsingar um Veiðibíla má finna á Facebook.
Bjóða upp á veiðibíla á Norðausturlandi
