Formúla 1

Grosjean fljótastur á öðrum degi æfinga í Jerez

Birgir Þór Harðarson skrifar
Afturbremsurnar í Mercedes-bílnum biluðu og Hamilton endaði í dekkjaveggnum. Hann er ómeiddur en Mercedes-bíllinn ók ekki meira eftir þetta.
Afturbremsurnar í Mercedes-bílnum biluðu og Hamilton endaði í dekkjaveggnum. Hann er ómeiddur en Mercedes-bíllinn ók ekki meira eftir þetta. nordicphotos/afp
Dagurinn í Jerez á Spáni var kaldur þegar Romain Grosjean setti besta tímann í Lotus E21-bíl sínum í dag. Hann ók 0,6 sekúndum hraðar en Jenson Button gerði í gær.

Dagurinn gekk vel hjá flestum liðum utan Marussia og Mercedes. Annan daginn í röð kom Mercedes-liðið bíl sínum ekki fleiri hringi en 15 um Jerez-brautina en í gær ollu vandræði í rafbúnaði því að Nico Rosberg komst ekki lengra en 11 hringi.

Í dag settist Lewis Hamilton við stýrið en bilun í afturbremsum nýja W04-bílsins varð til þess að Hamilton flaug á fullri ferð út af, yfir malargryfjuna og í dekkjavegginn. Hann er ómeiddur eftir slysið en Mercedes-liðið ákvað að reyna ekki að koma honum aftur af stað eftir hádegi.

Luiz Razia, nýr keppnisökuþór Marussia-liðsins, ók bílnum í dag en komst aðeins 31 hring áður en Cosworth-vélin gaf sig. Ekki var hægt að laga vandamálið áður en æfingunni lauk og annan daginn í röð endaði Marussia með fimm sekúndum á eftir fljótasta manni.

Liðin óku mun fleiri hringi í dag en í gær. Samtals fóru allir bílarnir 856 hringi um brautina miðað við 654 hringi í gær. Red Bull ók flesta hringi vandræðalaust í dag eða 101 með Mark Webber við stjórnvölinn. Paul di Resta hefur ekið máða dagana hefur samtals ekið 184 hringi í Force India-bílnum. James Rossiter ók svo 19 hringi í Force India-bílnum í dag og því hefur það lið ekið flesta hringi á þessu ári.

Grosjean setti besta tíma fyrir hádegi og hélt efsta sætinu með nokkrum stuttum ferðum út á brautina eftir hádegi. Lotus-bíllinn lítur vel út í þessum stuttu ferðum og verða þeir Grosjean og Kimi Raikkönen örugglega sterkir í tímatökum í sumar ef fer sem horfir.

Fyrsta vafaatriði ársins á bíl CaterhamUm leið og æfingarnar í Formúlu 1 hefjast í lok vetrar byrja tæknimenn allra liða að njósna um það hvaða nýjungum hin liðin hafa komið fyrir á nýju bílum sínum. Oft geta tæknimennirnir komið höggi á keppinauta sína með því að finna eitthvað sem virðist ekki rúmast innan þeirra regla sem öll liðin hafa samþykkt.

Og fyrsta vafaatriðið kemur úr óvæntri átt því nýi Caterham-bíllinn virðist í raun vera ólöglegur. Yfirmenn annarra liða hafa í það minnsta sagt að Caterham muni ekki geta keppt bílnum í Ástralíu eins og hann lítur út núna.

Deilan snýst um spaða fyrir aftan opið á púströrinu á Caterham-bílnum sem virðist til þess gerður að beina útblæstrinum að gólfi bílsins og þannig auka loftflæðið í gegnum loftdreifinn aftast á bílnum. Sé þetta rétt er spaðinn ólöglegur því tæknireglurnar kveða skýrt á um að enginn hluti yfirbyggingar bílsins megi vera innan keilulaga svæðis fyrir aftan pústopið.

Cyril Abiteboul, liðstjóri Caterham, segir ekkert aðfinnsluvert við hönnunina. „Ég skil reglurnar þannig að þetta sé innan ramma þeirra," sagði Abiteboul við Autosport. „Við prófuðum þetta á bílnum í fyrra og enginn gerði athugasemdir þá."

Æfingarnar halda áfram á morgun og á föstudaginn í Jerez á Spáni áður en keppnisliðin loka sig aftur af í verksmiðjum sínum til að undirbúa næstu prófanir í Barcelona í lok mánaðarins.



Grosjean var fljótastur í dag.nordicphotos/afp
Æfingatímar dagsins
PÖkuþórLiðTímiBilHringir
1GrosjeanLotus1:18,218 95
2di RestaForce India1:19,0030,78595
3RicciardoToro Rosso1:19,1340,91683
4WebberRed Bull1:19,3381,120101
5HulkenbergSauber1:19,5021,28499
6HamiltonMercedes1:19,5191,30115
7PerezMcLaren1:19,5721,35481
8MassaFerrari1:19,9141,69678
9MaldonadoWilliams1:20,6932,47571
10RossiterForce India1:21,2733,05519
11vd GardeCaterham1:21,3113,09388
12RaziaMarussia1:23,5375,31931
  Samtals  856



Fleiri fréttir

Sjá meira


×