Fimmta mark Balotelli í fimm leikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. mars 2013 22:13 Nordic Photos / Getty Images
Mario Balotelli var enn og aftur á skotskónum í kvöld en hann skoraði eitt marka AC Milan í 2-0 sigri á Genoa á útivelli í kvöld. Giampaolo Pazzini meiddist þegar hann var tæklaður af Daniele Portanova á átjándu mínútu. Hann hélt þó áfram og kom AC Milan yfir fjórum mínútum síðar með föstu skoti. Pazzini neyddist þó að fara út af vegna meiðslanna stuttu síðar og kom Balotelli inn á í hans stað. Balotelli skoraði svo síðara mark liðsins á 60. mínútu. AC Milan missti svo Kevin Constant af velli er hann fékk sína aðra áminningu á 65. mínútu en það kom ekki að sök. Genoa var meira með boltann og átti fleiri skot en liðið náði ekki að komast fram hjá Christian Abbiati í marki AC Milan. Balotelli gekk í raðir AC Milan í janúar síðastliðnum frá Manchester City. Síðan þá hefur hann skorað fimm mörk í jafn mörgum deildarleikjum. AC Milan er í þriðja sæti deildarinnar með 51 stig, átta stigum á eftir toppliði Juventus. Genoa er í sautjánda sæti deildarinnar með 26 stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Körfubolti „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Enski boltinn Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Sjá meira