Sala veiðileyfa fyrir næsta sumar gengur vel hjá Stangveiðifélagi Keflavíkur samkvæmt frétt á vef félagsins.
"Er ljóst að ekki verður mikið eftir af veiðileyfum á bestu tímum eftir að úthlutun til félagsmanna hefur farið fram," segir á svfk.is. Veiðileyfin sem ekki seljast til félagmanna fara í almenna sölu 14. mars.
Segir síðan að nú fari hver félagsmaður SVFK að verða síðastur til að skila inn veiðileyfaumsóknum fyrir næsta sumar. Síðasti skiladagur vegna veiðileyfaumsókna sé á morgun, fimmtudaginn 7. mars, fyrir klukkan 16.
Í frétt SVFK er þakkað fyrir þann fjölda umsókna sem borist hafi. Það er kannski ekki að ástæðulausu að menn þakki slíkt í þeirri ótíð i veiðileyfasölu sem einkennt hefur markaðinn í vetur
gar@frettabladid.is
