Leiksvið þessa einstaka fjölspilunarleiks er dimm og nöturleg stórborg í gotneskum stíl. Vampírur ganga þar lausar. Þær freista þess að fela tilvist sína, samhliða því að herja á slagæðar borgarbúa. Innbyrðis átök mismunandi hópa vampíra og blóðug barátta fyrir yfirráðum borgarhluta drífa söguþráðinn áfram.
Chris McDonough, framleiðandi World of Darkness, steig á svið í Kaldalóni í Hörpu í morgun og fór yfir helstu tíðindi úr herbúðum CCP. Reynir Harðarson, listrænn stjórnandi leiksins, svaraði síðan spurningum úr sal, sem var þéttsetinn.
Chris og Reynir tilkynntu að það væri keppikefli CCP að nýta samskiptamiðla í World of Darkness. „Spilarar munu ávallt geta nálgast leikinn,“ sagði Chris. „Sama hvort að það er í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða borðtölvu.“

Það fór síðan kliður um salinn þegar Chris skipaði hátíðargestum að slökkva á farsímum og öðrum raftækjum. „Núna fáið þið að sjá World of Darkness,“ sagði Chris og fyrirskipaði síðan starfsmönnum CCP að ganga úr skugga um að enginn væri með snjallsíma á lofti.
Veröld World of Darkness er sannarlega tilkomumikil. Í myndbandinu mátti sjá ófrýnilegt vampírukvendi liðast milli skýjakljúfa, í skjóli nætur og í leit að næstu bráð. Í fjarska mátti sjá hópa af blóðsugum stökkva milli háhýsa og hrifsa til sín grunlausa borgarbúa.
Chris ítrekaði að myndbandið væri aðeins sýnishorn af því sem hefur átt sér stað í þróun leiksins og væri aðeins ætlað gestum á Fanfest.
Aðspurður hvenær World of Darkness væri væntanlegur sagði Reynir að framleiðslan væri enn stutt á veg komin. Útilokað er að leikurinn verði tilbúin á næsta ári, mögulega 2015.
Hér fyrir ofan má sjá myndskeið sem CCP birti á síðasta ári en þar andrúmsloft World of Darkness kynnt.