Körfubolti

Mesta sveifla í sögunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fannar Helgason í baráttu við Þorleif Ólafsson og Jóhann Árna Ólafsson.
Fannar Helgason í baráttu við Þorleif Ólafsson og Jóhann Árna Ólafsson. Mynd/Vilhelm
Stjarnan svaraði 24 stiga tapi í fyrsta leiknum gegn Grindavík í úrslitakeppni karla um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með 37 stiga sigri í Garðabæ. Um mestu sveiflu í sögu úrslitaeinvígi karlaliða á Íslandi er að ræða eða 61 stig.

Óskar Ófeigur Jónsson hefur tekið saman mestu sveiflur í úrslitaeinvígjum um titilinn eftirsótta. Fyrir föstudagskvöldið var mesta sveiflan í sögunni í viðureign Grindavíkur og Njarðvíkur árið 1994. Heildarstigamunur á milli leikja var 51 stig.

Athygli vekur að ekkert lið sem hefur tapað leik í úrslitaeinvíginu með meira en 30 stiga mun hefur staðið uppi sem Íslandsmeistari. Grindavík getur því brotið blað í sögunni.

Keflavík á metið yfir stærsta tap í úrslitaeinvígi þar sem lið vinnur titilinn. Keflavík tapaði með 28 stigum í leik þrjú í lokaúrslitum á móti Val 1992, 67-95.

Samantekt Óskars Ófeigs má sjá hér fyrir neðan.

Mestu sveiflur í sögu úrslitaeinvígis karla
Sverrir Þór Sverrisson í leik með Keflavík gegn ÍR.
61 stig - 2013

Leikur 1 Grindavík-Stjarnan 108-84

Leikur 2 Stjarnan-Grindavík 93-56

- Leikur 3 er í kvöld

51 stig - 1994

Leikur 3 Grindavík-Njarðvík 90-67

Leikur 4 Njarðvík-Grindavík 93-65

- Njarðvík vann einvígið 3-2

- Teitur Örlygsson lék með Njarðvík

50 stig - 1992

Leikur 3 Keflavík-Valur 67-95

Leikur 4 Valur-Keflavík 56-78

- Keflavík vann einvígið 3-2

45 stig - 2010

Leikur 4 Snæfell-Keflavík 73-82

Leikur 5 Keflavík-Snæfell 69-105

- Snæfell vann einvígið 3-2

41 stig - 1996

Leikur 1 Grindavík-Keflavík 66-75

Leikur 2 Keflavík-Grindavík 54-86

- Grindavík vann einvígið 4-2

41 stig - 2006

Leikur 2 Skallagrímur-Njarðvík 87-77

Leikur 3 Njarðvík-Skallagrímur 107-76

- Njarðvík vann einvígið 3-1

41 stig - 2010

Leikur 1 Keflavík-Snæfell 97-78

Leikur 2 Snæfell-Keflavík 91-69

- Snæfell vann einvígið 3-2

Lið sem hafa tapað með 30 stiga mun í lokaúrslitum
Teitur Örlygsson með bikarinn eftirsótta.
Haukar 1986 (53-94 á móti Njarðvík) - tapaði einvíginu 0-2

Keflavík 1991 (59-96 á móti Njarðvík) - tapaði einvíginu 2-3

Haukar 1993 (67-103 á móti Keflavík) - tapaði einvíginu 0-3

Keflavík 1996 (54-86 á móti Grindavík) - tapaði einvíginu 2-4

Skallagrímur 2006 (76-107 á móti Njarðvík) - tapaði einvíginu 1-3

Keflavík 2010 (69-105 á móti Snæfelli) - tapaði einvíginu 2-3

Stjarnan 2011 (78-108 á móti KR) - tapaði einvíginu 1-3

Grindavík 2013 (56-93 á móti Stjörnunni) - ???


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×